Gestayfirlesari?
Já, mér fannst ég kannast við hann! Bland í poka í verðlaun fyrir þann sem fyrst sér af hvaða plakati kvíslin er stolin (með því skilyrði að ég fái smakk).
Já, mér fannst ég kannast við hann! Bland í poka í verðlaun fyrir þann sem fyrst sér af hvaða plakati kvíslin er stolin (með því skilyrði að ég fái smakk).
March 4th, 2009 at 02:20
Er þetta kannski einhver djúp pólitísk ádeila?
March 4th, 2009 at 14:39
Í fyrstu giskaði ég á að þetta væri héðan: http://www.tv1.is/
Eina sem ég gat fundið á stuttum tíma er: http://img1.sidereel.com/_icon/87f.jpg
En mér finnst nú einkar ósennilegt að þú hafir nennt að púsla þessu saman út frá þessari mynd
- væri samt skemmtilega kaldhæðið í þessu samhengi (Steingrímur Joð wears Prada).
Annars mátt þú nú bara eiga þetta bland í poka, ég safna bara bólum af slíku sykursulli.
March 4th, 2009 at 18:59
Þú efast en ert þó öruggur - afsalar þér namminu áður en þú færð það. Mig langar að minna þig á gamalt máltæki; „Ekki er kálið sopið þó í ausuna sé komið.“ Það mætti kannski breyta því hér: „Ekki er nammið étið þó í pokann sé látið.“
En jú, auðvitað er þetta myndin. Ég eyddi óhóflegum tíma í þetta í gærkvöldi, og fram á nótt sem endaði með þreyttum degi í dag. En myndin er góð, svo það var þess virði. Verðlaunin færðu afgreidd aðra vikuna í Apríl (algerlega handahófskennd dagsetning, dró hana upp úr hatti) og innifalið er allt að 100% smakk af minni hálfu.