Týpískt

Gengi krónunnar styrktist um 1,55% í dag en gengisvísitalan var 194 stig við upphaf viðskipta en lokaði í 191 stigi. Gengi Bandaríkjadals er 113,81 króna, evran er 143,23 krónur, danska krónan er 19,222 krónur og pundið 162,36 krónur.

Svo vel segir mbl.is frá í dag. Nú þykir kannski víst að mér sé skemmt, en því er aldeilis ekki við að líta. Í dag byrjaði ég í nýrri vinnu þar sem ég fæ greitt í dönskum krónum. Ég virðist aldrei veðja á réttan hest: fyrst kaupi ég verðbréf sem hrynja, svo flyt ég til Danmerkur þegar íslenska krónan fellur og fellur og svo loksins þegar ég hyggst snúa vörn í sókn og fá útlenska peninga verður íslenska krónan dýrari. Ég get þó huggað mig við það að þetta lagar sennilega ástandið agnarögn á Fróni, það hlýtur nú alltaf að teljast gott.

3 Responses to “Týpískt”

  1. Gutti Says:

    Hey í hvaða vinnu ertu. Þú færð samt örugglega hærra fyrir hana en þú fengir hér.

  2. Gutti Says:

    http://www.mbl.is/mm/frettir/forsida/2009/02/17/vill_semja_um_kronubrefin/

  3. Baldur Says:

    Pylsusali á Ráðhústorginu!

    … nee, ekki alveg :D Ég mun koma til með að forrita heil ósköp (vona ég) í fyrirtæki sem heitir Assursoft. Lítið fyrirtæki stofnað kringum ákveðið verkefni, tveir í fullu starfi og svo erum við tveir í hlutastarfi. Allir úr DTU.

    Það verður spennandi að sjá með gjaldeyrishöftin, hvort samningar náist um að halda fjármagninu innanlands eða hvort allt rjúki út um leið og þau falla. Mér finnst þessi frétt þó segja mest lítið um framhaldið, meira spekúleringar um hvað er hægt að gera og hvað ekki. Er eitthvað fjallað um það í fjölmiðlunum heima hvað sé í gangi (ef eitthvað)?