Góðan Daginn?
Þegar ég sá Dag Bjé Eggertsson í fyrsta skiptið í viðtali í fréttum hugsaði ég með mér „En huggulegur ungur strákur.“ Hann kom vel fyrir, myndarlegur með djúpa og áheyrilega rödd og var svona „ungur maður á uppleið“ týpa. Síðan þá hefur þó álit mitt á honum heldur betur snúist við.
Ég man ekki hvenær það var, einhverntíman í fyrra á seinni helmingi ársins minnir mig, sem hann kom í Kastljósið. Eins og oft áður horfði ég á það en ólíkt mörgum skiptum var það hreint ekki svo áhorfanlegt. Frá mínum sjónarhóli fór maðurinn hreinum hamförum, ég man ekki hvað það var nákvæmlega sem fór í taugarnar á mér en ég komst að þeirri niðurstöðu að hann átti greinilega slæman dag. Það kemur nú fyrir besta fólk, svo ég ákvað að gefa honum annað tækifæri til að sanna sig.
Ég hef (blessunarlega) lítið orðið var við hann undanfarið, jafnvel alveg frá umtöluðum Kastjósþætti. Inn á milli hafa fréttamenn að sjálfsögðu forvitnast um borgarmálin og oft gripið til þess ráðst að ræða við manninn, enda röddin útvarpsvæn og andlitið sjónvarpsvænt. Prófkjörið sem hann tók þátt í kom honum reyndar meira í sviðsljósið en ella, en það var stutt og laggott, svo ég sá ekki ástæðu til að kvarta mikið yfir því. Nú þegar kosningar nálgast er hinsvegar annað uppi á teningnum. Frá og með deginum í dag munu vera dagleg fréttaskot um þær á RÚV í það minnsta (ég sá ekki NFS) og svo tekur Kastljósið stjórnmálafólkinu að sjálfsögðu opnum örmum. Þar sem ég má nú kjósa í fyrsta skiptið í þessum kosningum hef ég ákveðið að fylgjast örlítið betur með og hafa augu og eyru lítið eitt opnari fyrir stefnum og straumum í stjórnmálaheiminum. Nú rétt áðan fór lungað úr Kastljósinu einmitt í það að liðka málbein forystusauða stjórnmálahjarðanna. Þar kom margt fram og flest áhugavert.
Þó fannst mér áhugaverðast að fylgjast með fólkinu sjálfu sem mætti í salinn. Ég þekkti öll andlitin, misvel þó, en hafði skýrari mynd af fókinu á bak við þau eftir þáttinn. Merkilegast fannst mér hversu vel framkoma Dags undirstrikaði áðurnefndar grunsemdir mínar um hann. Þegar kom að honum var hann greinilega ákveðinn í að nýta allan þann tíma sem hinir nenntu að bíða eftir að hann lyki sér af og talaði svo örlítið lengur. Hann sparaði heldur ekki stóru orðin og flugu ásakanir yfir borðið þvert frá upphafi þáttarins til enda og lentu þær flestar ef ekki allar á Vilhjálmi Þonn Vilhjálmssyni sem æstist allur upp og skammaði Dag á móti.
Ég veit ekki með aðra en mér persónulega finnst leiðinlegt að hlusta á skammir og röfl. Til að mynda finnst mér fátt asnalegra en vælið í SMÁÍS um hvernig „ólöglegt niðurhal“ sjái til þess að kvikmyndahúsin verði af miklum fjárhæðum árlega og fara svo að grenja í kjölfarið. Hvernig væri að gera eitthvað í málunum í staðin? Það sama á við um Dag Bjé, hann mætir í sjónvarpssal og er ekki fyr kominn í mynd en hann byrjar að nöldra og skammast út í annað fólk. Þetta hefur ekki góð áhrif á mig. Síður en svo. Nöldur og skamm tengist leiðindum sterkum böndum í mínum huga og ef hann ætlar sér að fá mig til að kjósa sig og sinn flokk er hann á miklum villigötum vel úr alfaraleið. Fyrirtæki sem reyna að selja vöruna sína koma upp ákveðinni ímynd í hugum neytenda sem eru þá mun líklegri til að kaupa þeirra vöru fram yfir vörur samkeppnisaðilanna. Það sama gildir um stjórnmálaflokka, þeir eru ekkert annað en fyrirtæki sem selja hugmyndir og fólk. Leiðinleg ímynd hefur þess vegna mjög slæm áhrif á fylgi flokka og reyndar einnig almennt á kjörsókn.
Síðustu forsetakosngar í Bandaríkjunum gengu mikið til út á það sama, dregnar voru fram myrkar myndir af frambjóðendum frá löngu liðnum tímum og var því fleygt að kjósendur hefðu þannig verið fældir frá kjörstað. Í staðin fyrir að berja sér á brjóst og segjast vera til fyrir fólkið komu Bush og Kerry ljótum sögum á kreik hvor um annan og fólk Jesúsaði sig í bak og fyrir, ekki gat það farið að kjósa svona slæma menn? Best að halda sig bara heima.
Þessi stefna Dags mun því ekki ganga vel, í það minnsta ekki á mig. Þeir eru fáir sem skemmta sér yfir leiðindum og virðist mér því Dagur vera í bráðri hættu á fylgistapi. Formenn og framkoma þeirra skiptir höfuðmáli þegar veiða á fylgismenn því þeir sem dæma út frá stefnumálum hafa sennilega þegar gert upp hug sinn.
Þeir sem vonuðust eftir sterkum leiðtoga fyrir Samfylkinguna hefur að mínu mati áskotnast nöldur- og leiðindaseggur sem gerir í því að fæla fylgið í burtu. Því spái ég slæmum Degi fyrir Samfylkingamenn þegar sól rís á kosningamorgun.
May 2nd, 2006 at 00:30
Hann kom niður í skóla í síðustu viku og eyddi hálfum frímínútunum í að skammast út í sjálfstæðisflokkinn. Ég er alveg sammála honum í því að það væri slæmt fyrir borgina ef þeir kæmust til valda en ég kýs ekki flokk eftir því hve mikið hann skítur yfir annan flokk, sérstaklega ef sá flokkur hefur ekki verið í borgarstjórn síðustu tólf ár og hefur því varla fengið tækifæri til að klúða neinu, ólíkt sumum.
May 2nd, 2006 at 17:12
http://www.slæmurdagur.is
Er ekki málið að reka smá áróður?