Archive for May, 2009

Fullkomið líf?

Friday, May 29th, 2009

Þegar mér leiðist í vinnunni skoða ég stundum, eins og fleiri, Facebook. Núna áðan hafði ég ekkert betra að gera þar en að fara í gegnum allar beiðnirnar sem fólk hefur sent til mín, og ýtti á „Hunsa“ í gríð og erg. Það var þó ein sem mér fannst sérstaklega erfitt að hafna:

Fullkomnun

Uhm, já takk?

Tæknin þessa dagana sko, allt hægt á netinu!

Sarkozy

Saturday, May 23rd, 2009

Ætli strákarnir í Baggalúti hafi hugsað til hans við textasmíðina?
Sjarmör!

Eurovision?

Sunday, May 17th, 2009

Á meðan íslenzka þjóðin missti sig yfir Jóhönnu Guðrúnu í Moskvu horfði ég bara á Battlestar Galactica. Og rifjaði upp Fuglastríðið í Lumbruskógi - það er sko demantur!