Archive for November, 2008

Julefrokost

Monday, November 24th, 2008

Hér í Køben er allt orðið mjög jólalegt. Ég vaknaði um daginn við hvítar svalir sem venjulega eru timburbrúnar. J-dagurinn var fyr í mánuðinum, en þá byrjar Tuborg að selja jólabjórinn sinn með pompi og prakt, svo er allt orðið hvítt (a.m.k. um stundarsakir, þetta kemur náttúrulega og fer eins og á Íslandi) og haldinn var fyrirtaks Julefrokost hjá FÍVDTU í gær. Byrjað var á jólagleggi með rauðvíni og rúsínum, í forrétt var rúgbrauð og síld með sýrðum rjóma, aðalrétturinn samastóð af purusteik með brúnuðum kartöflum og meðlæti og svo lauk borðhaldinu með rísgraut, sem svipaði mjög til hrísmjólkurinnar sem Mjólkursamsalan selur, og berjasósu. Veislan var haldin í veglegum sal í Kollegíi niðri á Amager, ég smellti af nokkrum myndum þegar dreginn hafði verið fram gítar og fólk farið að syngja lög eftir Bubba.

Ég sá mér síðan sóma minn í því að hjálpa til við þrifin að veisluhöldunum loknum og skúraði skóför af gólfinu með dúndrandi hausverk þegar flestir voru komnir langleiðina niður í bæ.

Ég komst þó að lokum í bæinn og hypjaði mig svo heim um fimmleytið. Næst ætla ég að muna að strætó gengur ekki á sjötta tímanum heim úr bænum, ég hefði annað hvort þurft að bíða í klukkutíma eða taka leigubíl. Það kom ekki til greina svo ég gekk bara heim og réttlætti labbitúrinn með kebab sem ég keypti á leiðinni.

Mamma upplifði víst aldrei snjó þegar hún bjó hérna í námi á áttunda áratugnum og fannst því nokkuð merkilegt að allt væri orðið hvítt. Til að sýna henni að ég færi nú ekki með fleypur smellti ég af fyrir hana:

Ég nældi mér svo í lúkufylli af nýföllnum snjónum og gæddi mér á, ég er ekki frá því að hann sé betri heima á Íslandi.

Snjórinn kann svo að gæða lífi í annars dauða hluti eins og ég komst að á leið minni í frokostinn:

Nú lýk ég þessu á kvarti og kveini yfir þeim ruglukolli sem hefur reynt að deila með núlli í lyftuna hjá mér.

Þetta er náttúrulega til skammar, ég hef þurft að nota stigann alla vikuna!

Ætli ég reyni ekki að fara að sofa núna, eftir kannski eins og einn þátt af Lost. Ég er á góðri leið með að ná að vinna upp það sem ég hef trassað af Lost áhorfi síðustu árin, búinn með rúmlega helming af seríu þrjú! Er bara einu og hálfi ári eftirá núna, stend mig eins og hetja.

Íslandsfall

Saturday, November 15th, 2008

Augljós vísun í ástandið.

Ég byggði þetta á mynd sem notar GNU Free Document License sem þýðir víst að ég verð að dreifa þessari mynd undir sama leyfi. Ojæja, myndin er hlekkur sem vísar á SVG skrána sem ég vann þetta í.

Millilandamatarboð

Friday, November 14th, 2008

Í gær átti karl faðir minn afmæli, og var það ekkert smá afmæli. Það var meira yfir í að vera meðalstórafmæli, hálf sextugur orðinn. Af þessu tilefni var gamla settinu boðið í kvöldmat á Sólvallargötuna hjá systur minni og kó. Gísli mágur eldaði dýrindis karrýkjúklingarétt með banönum og kókosmjólk og bar fram með hrísgrjónum, nanbrauði og salati.

Ætli mætti að ég sæti bitur og blankur í íbúðinni minni á Svanevej þegar ég heyrði af þessu, en svo var þó ekki. Með snörum undirbúningi og frjórri hugsun tókst okkur að brúa bilið yfir Atlantshafið með hjálp Skype og vefmyndavéla. Ég keypti það sama í matinn, fékk persónulegan sjónvarpskokk beint inn í eldhús, kveikti á kertum og svo var sest að borðum.

Það var rosalega skemmtilegt að geta verið memm í matarboðinu, þó stafræn viðvera jafngildi nú ekki holdlegri. Við gátum þó átt breiðari samræður um matinn en gengur og gerist og borið saman diskinn hjá mér og eldamennskuna á Íslandi. Að lokum endaði þetta í ís með snickerssósu hjá hinum en ég lét mér nægja Prince Lu þar sem ég átti engan annan eftirrétt.

Matarboðið var ekki það eina sem var skipulagt í þaula, við Brynja höfðum komið okkur saman um afmælisgjöf handa gamla manninum og það var mjög gaman að geta verið viðstaddur upptöku hans. Pabbi fór sér hægt í að fletta pappírnum utan af kassanum en þegar hann var dottinn af kom í ljós ísvél frá Philips. Það má segja að þetta sé frekar fjárfesting af minni hálfu heldur en gjöf þar sem ég mun vera duglegur að rukka um ís með (á)vöxtum þegar ég verð aftur á Íslandinu.

Eins og asni gleymdi ég alveg að vista hjá mér myndir úr netsímtalinu, þær hefðu sómað sér vel í myndaalbúm framtíðarinnar. Ég verð bara að reyna að leggja á minnið bláköflótta dúkinn á borðinu hjá þeim, bindið sem Ýmir Bragi setti upp af tilefninu og kertaljósið sem ég tendraði á borðinu hjá mér.

Ég get þó lokið færslunni á myndskreytingum af Ikea dósaopnaranum mínum sem ég þurfta að fletta upp á netinu hvernig ætti að nota. Kókosmjólkin sem ég notaði var í dós svo ég ætlaði aldeilis að nýta dósaopnarann sem fylgdi með Ikeastartsettinu mínu. Það reyndist mér hins vegar um megn og ég slapp fyrir horn með því að saga gat á lokið með flöskuopnara og hella mjólkinni þar út. Ég brann hinsvegar í skinninu að fá að komast að því hvernig brúka skyldi opnarann og leitaði á google að því.

Dósaopnaraleiðbeiningar

Mynd frá flickr notandanum m kasahara

Þegar ég sá þessa mynd rann loksins upp fyrir mér að það er handfang falið á hliðinni á dósaopnaranum, eins og má ekki sjá á næstu mynd:

Gestaþraut?

Gestaþraut?

Leitin mín á Google skilaði einnig niðurstöðu sem benti á bloggara sem lent hafði í sömu vandræðum, og komst að því að þetta er greinilega vandlega dulbúið hæfnispróf hjá Ikea þar sem ótal fólk hefur notað umræðuvefi til að reyna að fá upplýsingar um þetta töfratæki.Vel gert Ikea!

Nýtt og ferskt?

Monday, November 3rd, 2008

Nei, endurunnið vörumerki. Fæst á spottprís í Føtex.

Ég er annars kominn upp á lagið að borða mat í pítubrauði. Því til sönnunar birtist hér mynd af seinni hluta kvöldmatar míns í gærkvöldi:

Úttroðin og sælleg! Innihaldið er kálblanda, tómatar, rauðlaukur, falafel, hamborgarhryggur (keyptur í sneiðum eins og skinka, ég er ekki farinn að æfa mig á jólasteikinni ennþá) og nóg af sterkri sósu og dressingu. Saman myndar þetta allt alveg fyrirtaks máltíð sem hvaða höfðingi sem er væri vel sáttur við.

Rétt í þessu bankaði fólk upp á hjá mér og sagði eitthvað sem ég skildi ekki en bentu á bækling með orðunum Guð og Jesú á. Ég er farinn að vera harðari af mér við svona fólk, veifaði út í loftið og tautaði “not intersted”. Það sem ég klikkaði hinsvegar alveg á að gera var að benda þeim á hvað ég væri sjálfur að lesa góða bók, The God Delusion eftir Richard Dawkins, sem er akkúrat á hinum endanum. Ég hefði átt að sýna þeim bókina, dásama hana og mæla sterklega með henni áður en ég skellti aftur hurðinni. Snúa vörn í sókn, þá hættir þetta blessaða fólk kannski að eyða tímanum trúboð og maður bjargar öðrum dyrabjöllueigendum frá því að þurfa að fara til dyra þegar Jesú Kristur styður á. Svo gæti maður snúið þessu upp í öfgar og prédikað Satanísku Biblíu Antons Lavey, en ég sé ekki hvernig það gæti endað vel.

Ég skilaði af mér verkefni í morgun og var mikið létt. Framundan eru þá bara þrjú önnur stór fram til loka nóvember. \o/ Og reyndar eitthvað fram í desember, en þar sem strákarnir sem ég er með í hóp eru í prófum vikurnar fyrir skil er stefnan tekin á snemmbúin verkefnislok. Heh, ég sé það alveg fara að gerast…

Síðastliðið laugardagskvöld hófst hjá mér á merkum stað í sögu Íslendinga, í sjálfu Jónshúsi. Þar heiðruðu Íslendingar í DTU minningu Jóns forseta með því að taka í einn léttan póker, sem ég að sjálfsögðu sigraði ekki. Ég komst þó áfram í aðra umferð þegar borðin voru sameinuð, sem er nú áfangasigur út af fyrir sig. Sennilegast kom það þó til af því að það voru fleiri nýgræðingar en ég við borðið mitt sem gáfu mér þannig forskot (ég hef jú spilað póker einu sinni áður, fyrir rúmum tveimur árum).

Þegar líða tók á nóttina var haldið niður í bæ þar sem fyrir voru fleiri Íslendingar á stað sem gerir greinilega út á landann því þeir stóðu beggja vegna barborðsins. Þetta er annar staðurinn sem ég kynnist sem hefur Íslendinga í afgreiðslu, en hinn er að sjálfsögðu the Laundromat Café hjá Frikka Weiss.