Sippað á næsta stig
Saturday, October 25th, 2008Það er greinilega hægt að gera meira með snúsnú bandi en að leika sér á skólalóðinni:
Það er greinilega hægt að gera meira með snúsnú bandi en að leika sér á skólalóðinni:
Ætli kreppan hafi farið einhvernvegin svona af stað?
Svo er annað með Indriða, ekki síðra:
Ég vil einhvern ógnarkraft
sem allt í heimi getur
Til að rífa mig á rétta braut
og reka allt burt sem letur
Á ráfi mínu um netheima rakst ég á viðtal við John Lennon og Yoko Ono tekið 1970 eða 71 af Dick Cavet, sem er bandarískur fyrrum þáttastjórnandi. Þetta viðtal vakti athygli mína fyrst þar sem það ber nafnið “John Lennon-on Yoko Breaking Up the Beatles” en svo þegar ég byrjaði að horfa á það tók ég eftir nokkrum hlutum sem mér þóttu athyglisverðir.
Sá fyrsti var reykingarnar. Þegar myndbrotið hefst heldur Ono á sígarettu sem hún drepur svo á eftir tæpa mínútu, en lengra inn í viðtalinu fá bæði Lennon og hún sé aftur smók. Þetta er hlutur sem stingur virkilega í stúf nú til dags en þótti jafn eðlilegt fyrir fjörutíu árum og vatnsglas viðmælenda þykir sjálfsagt í dag. Þetta varpar örlítið nýju ljósi á reykingarbannið sem gekk í gildi á Íslandi í fyrra og mun, þegar fram líða stundir, þykja jafn furðulegt að reykja á börum og tónleikum eins og það þykir í bönkum og læknabiðstofum í dag.
Það næsta sem ég tók eftir var hárgreiðslan á Lennon. Fyrir fjórum árum hefði ég ekkert séð athugavert við hana en nú er hún greinilega nokkurra áratuga gömul. Ég er farinn að hafa svona líka næmt auga fyrir því hvað er í gangi akkúrat í núinu, hvort sem það er nú gott eða slæmt. Svo er settið allt náttúrulega mjög mikið sjöundi áratugurinn, það er engum blöðum um það að fletta.
Það síðasta sem mér fannst mjög athyglisvert við spjallþátt af þessu tagi er hve eðlilegar samræðurnar eru. Þær eru greinilega lítið eða ekkert æfðar fyrirfram heldur spinnast á staðnum eins og samræður gera dags daglega. Þau grípa hvert fram í fyrir öðru og koma svo aftur að þar sem hitt hætti og eru ekki með skotheld punch-line.
Hér er svo viðtalið: