Archive for September, 2008

Efnahagsaðgerðir

Monday, September 29th, 2008

Í skugga þess skýs sem ber fyrir sólu peningamanna skrælna laufin á peningatrénu og svífa gul og gengisfallin til jarðar, breytast með úrkomunni í drullumall sem þeir síðan verða að þurrka undan sólunum á dyramottu ríkisstjórnarinnar.

Þó Glitnir sé þjóðnýttur og danska krónan sé farin að sleikja 20 krónur íslenskar ákvað ég að láta ekki deigan síga heldur berjast móti vindinum. Ég rúllaði með yfirfullum strætisvagni niður á Jarmerstorg og inn á bæjarskrifstofuna þar sem ég sótti um húsaleigubætur. September er runninn í vaskinn hjá mér en ég held ég hafi rétt náð að fiska í Októberbæturnar, þar sem konan sem afgreiddi mig sagðist ætla að stimpla fyrir mig umsóknarplaggið þó upplýsingarnar sem ég hef trassað að fá frá leigusalanum hafi ekki staðið á því. Ég þarf bara að hlaupa með þær inn á borð til hennar um leið og þær berast.

Þetta er í raun það eina sem blífar þegar allur peningurinn sem liggur á debetkortinu er botfallinn í gjaldeyrisupplausninni. Danskar krónur inn á reikning sem ekki skreppa saman, heldur safna þvert á móti vöxtum. Næsta skref væri að leita að vinnu, en ég held ég láti það bara bíða fram á næsta sumar þegar ég reyni að þefa upp eitthvað efnahagslega gefandi á Íslandinu góða.

Bytta

Friday, September 26th, 2008

Er ekki fyrsta skrefið að játa vandamálið?

Dósahlaði

Dósarkitektúr

Ég væri svo að drekka meira ef ég ætti fleiri kalda í ísskápnum, en þeir eru því miður búnir.

Ég er annars farinn að fíla Leonard Cohen í tætlur (kannski spilar hífunin þar inn í), ég mæli sérstaklega með fyrsta disknum hans (sem er merkilegt nokk, miðað við að maðurinn sé enn í gangi!, frá 1967) sem ber einfaldlega nafnið Songs of Leonard Cohen. Lög á borð við Suzanne og So Long, Marianne eru tær snilld.

Hringtilvitnun?

Friday, September 26th, 2008

Ég leitaði að því hverjir litir íslenska fánans eiginlega væru og endaði á þessari síðu.

Þarna kemur fram að:

Þetta lítur út fyrir að vera einföld lausn á vandamálinu :D

Annars finnst mér að það ætti nú að vera hægt að nálgast þennan litaskala án endurgjalds, þegar ég reyndi að finna hann á netinu fann ég bara umsókn til að panta hann fyrir fúlgur fjár á þessari síðu (ég viðurkenni þó að leitin var stutt). Greinin á wikipedia um fánann tilgreinir RGB gildin 00529B, en þegar ég slæ það inn í myndvinnsluforrit kemur hreint ekki svo heiðblár litur. Ég þarf að rannsaka þetta betur.

Rauða hættan

Sunday, September 21st, 2008

Í tilefni þess að Red Alert 3 er væntanlegur á markaðinn ákváðu EA að gera Red Alert 1 aðgengilegan gegnum heimasíðu sína án aukakostnaðar. Þeir ákváðu sumsé að gefa leikinn \o/

Ég tók strax við mér og náði í hann, og eyddi svo síðustu nótt í að koma honum upp á Windows sneiðina á tölvunni hjá mér. Tölvukerfið hjá mér lítur frekar furðulega út núna þar sem mig vantar beini (e. router) til að stýra ip tölum á tölvunum (ætla að fjárfesta í þannig tæki strax á morgun) svo ég stundaði miklar æfingar til að ná að tengja tölvurnar tvær saman. Tölvurnar tvær eru, til að hafa hlutina á hreinu, þjóninn sem ég fékk frá Mána og inniheldur alla hörðu diskana sem ég kom með frá Íslandi og svo hinsvegar fartölvan mín.

Eftir að ég var búinn að koma leiknum upp og fortíðarljóminn (e. nostalgia) dansaði á tölvuskjánum ákvað ég að glíma við verkefni sem ég setti á hilluna fyrir þónokkrum árum síðan. Ég ákvað að fá leikinn til að virka án geisladiska (eða hermun á þeim í Daemon Tools eða álíka).

Ég rifjaði upp gamla takta og nældi mér í nokkur forrit á netinu til þess gerð að möndla með gögnin í leiknum (t.d. er XCC Mixer hrein snilld ef maður vill sjá myndböndin í leiknum en nennir ekki að klára öll verkefnin) og náði svo í nokkur no-cd cröck, en ekkert gekk. Næsta skref var því eitt sem mér fannst á liðnum tíma risastórt og hálf ómögulegt. Það var að næla mér í hex-editor og krukka í tölvukóða keyrsluskrárinnar. Oh boy.

Hinsvegar er munurinn á mér þá og nú sá að ég kann að beita þessum tólum betur núna. Reyndar gekk hex-editor pot ekki neitt svo ég fór að beita stærri og flóknari tólum. Það sem best virkar, og félagi minn úr tölvunarfræðinni í HÍ mælti sérstaklega með, heitir IDA Disassembler. Hann notar það m.a.s. í vinnunni sinni hjá Frisk.

Ekki náðist markmiðið þó vel hafi miðað. Ég held ég hafi fundið mér nýtt áhugamál þarna, svona grúsk jafngildir ágætis rökfræðiþraut og væri gaman að taka frá tíma til að takast á við kóðann og endubyggja leikinn, líkt og Ludvig Strigeus gerði við Transport Tycoon Delux og bjó til OpenTTD (en hann gerði einmitt líka hinn geysivinsæla µTorrent).

Þetta grúsk væri varla frásögu færandi ef ekki hefði brugðið fyrir undrum og furðulegheitum í ferlinu. Á ferð minni gegnum sundursmalaðan kóðann rakst ég á nokkuð sem mér þótti merkilegt og skemmtilegt í senn; á milli tölvuskipana og textastrengja sem notaðir eru í leiknum má finna ágrip af innanhúsnetspjalli frá gerð leiksins. Ég gerð það að leik mínum að skrifa niður þessar línur sem leynast í skránni:

Bill R: Hey, isn’t this cool?
Bill R: Hey, want some seafood?
Barry G: Great. Just great.
Barry G: Wonderful. Perfect, in fact.
Bill P: You call this AI? Sheesh!
Bill P: Bills rule!
Brett S: Take this out, now!
Brett S: Why can’t you fit any more letters on the l
Brett S: Ed, I want to talk to you about this
Penina F: Has anyone seen my stapler?
Penina F: Has anyone seen my thesaurus?
Penina F: Has anyone seen my pencil?
Milo B: Hey Steve, can we meet in your office?
Milo B: Steve, it’ll only take a minute.
Rob S: Milo, dial 294.
Elsbeth W: That’s ‘Elsbeth’, with an E-L-S
Elsbeth W: That’s ‘Elsbeth’, not ‘Elsbarf’
Elsbeth W: That’s ‘Elsbeth’, not ‘Elfbutt’
Karen G: This is sooo weird!
Karen G: Duh!
Phil G: Hey, it worked on my computer!
Phil G: This thing is clrearly a waste of memory.
Joe B: Hmm,I see!
Joe B: Ahh, yes.
Maria DMML: Not another installer!
Maria DMML: HA HA HA HA HA!
Mike L: This is really cool! Gosh guys! Wow!
MIke L: Wow! You guys are the greatest!
Mike G: Grayfish for lunch again?
Mike G: This is lame
Glenn S: This thing’s bugged.
Glenn S: Ship it!
Steve W: OK everyone, out of my office.
Ed D: A good chat program is like a ninja…
Ed D: A good ninja is like a ninja…
Erik Y: I wear designer jeans.
Erik Y: Hey Bill, this thing keeps crashing
Jeff F: This is absolutely the best ever!
Jeff F: This is absolutely the worst ever!
Rick N: Sounds like a driver probelm.
Scott B: I need this for LOL2!
Steve T: This seems rather silly, actually.
Paul M: No…. W A Y!!
Rick P: AH HA HA HA!! HAHA!! AHH HA!
Joe K: Stalin killed my father.
Joe K: I hope you’re proud of yourself, Bill.
Big Willy: Anybody fer a spittin’ contest?
Eric W: Karate is good but you use it for evil!
Ted M: Ha. Funny. This is funny.
Damon R: I blame the French.
Dwight O: Oh, man!
Kia H: Ion cannon ready.
Kia H: Select target.
Bruce J: I am the Genie in the lamp!
Laura W: Go away, Bill
David D: Hmmm…
Mike Li: Call me Nate.
Denzil L: This would be better on the mac.
Greg H: But does it fit into 2 MB?
Jonathan L: I think I need a haircut.
Adam I: Whatever. Beef!
Joseph H: <Icy glare>
Matt H: I’m never good with clever on the spot…
Chris R: I love my job. Yeah.
Pat C: I’m a professional yodeller.
Ian L:
Jack M: I live about a block from the proposed site.
Jeff B: They all look like ants from up here.

Ég er hreint ekki sá fyrsti sem tek eftir þessu en það er alltaf gaman að uppgötva svona leynd skilaboð á stöðum sem maður síst býst við þeim.

Myndaskinka!

Thursday, September 18th, 2008

Skinka = spam.

Kvöldmatur um daginn:

Kvöldmatur í návígi:

Svo til að gefa nasasjón af því hvernig íbúðin lítur út koma hérna nokkrar myndir frá fyrsta kvöldinu sem ég var í henni:

Rúmið sem sést á þessum myndum er það sem ég keypti á fyrsta degi en var allt of stíft. Því svíf ég inn í svefninn á öðru rúmi núna, sem nota bene er komið á lappir. Annars er allt orðið mun heimilislegra hérna núna, viskastykkin komin á handföngin á elhússkápunum, bækur komnar upp í hillu, sófinn upp að vegg, stólar við borðið, baðmotta á baðið og kerti á eldhúsborðið, til að hafa svolítið kósý.

Fyrst ég er nú kominn af stað með að setja inn myndir vil ég láta nokkrar fylgja sem ég tók af skrifstofu hjá manni sem vann á sömu hæð og ég í Landsvirkjun í sumar.

Þessi skrifstofa hefur margt að geyma en lítið fer fyrir vinnuaðstöðu. Þó var það svo að maðurinn vann þarna inni, ekki skil ég hvernig hann fór að því.

Síðasta myndin er svona hvít vegna þess hve sólríkt var þegar hún var tekin, glugginn í bakgrunni, enda var síðastliðið sumar fáránlega sólríkt og gott. Hér í Køben er þó heldur farið að kólna og haustið hellist óðum yfir borgina. Ég er þó búinn að jafna mig af kvefinu.

Til að hafa þetta svolítið sundurlausara þá vil ég minnast á tvær myndir sem ég horfði á í gær. Þemað var Tarantino og var fyrri myndin Four Rooms sem gerist á hóteli og fylgir sögu vikardrengs sem nýlega hefur hafið þar störf. Dagurinn er gamlársdagur, sem líður svo fram á kvöld, og lendir hann í sífellt skrautlegri uppákomum með gestum hótelsins. Myndinni er skipt í fjóra hluta sem hver gerist í sínu herberginu og er leikstýrður og skrifaður af mismunandi leikstjórum og handritshöfundum, en þar á Tarantino síðasta hlutann.

Seinni mynd dagsins var True Romance sem er heldur blóðugri og inniheldur meiri hasar en nafnið gefur til kynna. Myndin er skrifuð af Tarantino en hann seldi handritið til að fjármagna gerð Reservoir Dogs, sem var fyrsta myndin sem kom út eftir hann. Ég er á þeirri skoðun að Tony Scott, leikstjóri True Romance, hefði síður átt að blanda sér í gerð hennar, og að töluvert betri útkoma hefði verið af leikstjórn Tarantino. Það sem ég fann helst að myndinni var hve hræðileg tónlist skreytir senurnar, en einnig að handritinu var breytt, sem er mesta firra því það brýtur heim Tarantino, sem hann svo meistaralega hefur ofið inn í allar sínar myndir.

Þessum heimi er lýst mjög vel brasilísku stuttmyndinni Tarantino’s Mind:

Undur og stórmerki!

Monday, September 15th, 2008

Ég var að komast að því rétt í þessu að það er ekkert mál að senda skrár úr símanum mínum yfir á tölvuna gegnum Bluetooth þegar ég er í Linux. Mér finnst það alger snilld því hingað til (í eitt skipti að mig minnir) hef ég notað hugbúnaðinn sem fylgdi með símanum til að gera það sama gegnum USB snúru, en það gengur bara í Windows og því nenni ég aldrei að gera það. Nú get ég hinsvegar farið að taka myndir eins og brjálæðingur, og komið þeim á netið á svipstundu. Myndir í næstu færslu!

Í öðrum fréttum er það helst að mamma og pabbi litu við. Þau lentu á Kastrup á fimmtudagskvöldið og voru að fara núna í kvöld (á mánudegi). Ég fékk betri mat þessa daga en þegar ég útbjó mér sjálfur ristað brauð með súkkulaðismjöri og svo var líka verzlað og verzlað og verzlað og verzlað. Og verzlað.

Ísskápurinn er núna fullur af mat \o/ og við fórum eina ferðina enn í Ikea og keyptir voru stólar, óhreinatauskarfa, baðmotta, fleiri glös og margt annað og meira. Með þeim skötuhjúum fylgdi þó aðallega heimilisbragurinn, það sannast best á því að ég er kominn með stemningslýsingu á eldhúsborðið: kertaljós í tafllitum.

Það var annars voða gott að fá þau fyrir utan öll innkaupin, mamma sparkaði mér af stað í þrifum sem og eldamennsku og ég borðaði mína fyrstu tilraun í kvöld: kjötbollur með brúnni sósu, kartöflusalati og sultu. Og grænu salati líka. Það bragðaðist ljómandi vel og fylgja myndir af því næst.

Áður en ég fer að koma mér allt of seint í háttinn vil ég minnast á Dr. Horrible’s Sing-Along Blog sem ég var að horfa á áðan. Þessir þættir eru tær snilld, voru skrifaðir í verkfalli handritshöfunda fyr á árinu og gefnir út á netinu í sumar. Söngleikjastuttmynd í þrem hlutum af bestu gerð.

P.S. Ég er að spá í að fara að breyta útlitinu eitthvað, þetta standard lúkk er ekki alveg nógu trendý.

Athugasemdir

Friday, September 12th, 2008

Í baráttu minni við ruslathugasemdir fyr á árinu ákvað ég að taka fyrir allar athugasemdir sem sendar væru á síðuna. Þetta virkaði ekki baun þar sem reglan var ekki afturkvæm, þ.e. enn var hægt að senda inn athugasemdir við gömul röfl en ekki við þau nýju. Þar sem ég röflaði ekki neitt frá því í apríl komst ég hinsvegar ekki að þessu, og dæmdi þessa tilraun mína misheppnaða.

Nú hef ég tekið að blogga á ný og fannst mjög einmanalegt að sjá engar athugasemdir við nýju póstana mína. Gutti benti mér svo á að það væri einfaldlega ekki hægt að senda inn athugasemdir, og þá rann upp fyrir mér hví enginn hafði sent þær inn.

Vandamálið er leyst, hver sem er getur nýtt sér málfrelsi sitt í athugasemdakerfinu að nýju og ég gef fullt skotleyfi á allar greinar. Hefjið skothríðina!

Fyr að sofa

Tuesday, September 9th, 2008

Gærdagurinn hófst með ristavélakaupum og í kjölfarið skrapp ég í Ikea til að vera viss um að rúmið sem ég vildi fá væri til. Það var raunin og ég fór aftur heim, hringdi á bíl og skilaði gamla rúminu. Mér til mikillar furðu fékk ég ekki inneignarnótu hjá Ikea heldur voru allar tæpar 1900 krónurnar greiddar út í reiðufé. Það skipti mig svosem ekki miklu þar sem ég strunsaði beint inn á lager (með stoppu stutti á veitingastaðnum reyndar) og fyllti þrjár kerrur af drasli. Þar á meðal var skrifborð, skúffueining, skrifborðsstóll, sófi, rúm, borðlampi, herðartré og fleira. Þegar ég kom svo heim var netið komið í íbúðina og ég gat loksins leyft bitunum að streyma um cat-tengið. Restin af deginum fór að mestu í að taka við afmæliskveðjum og spjalla við ættingja á Skype. Best var þegar Villi afi, sem var í mat heima, fékk að sjá hvernig tæknin virkar í dag. Þegar hann var ungur var ekkert net og ekkert Skype svo þegar hann fór frá Skotlandi til Nýja Sjálands var sambandið mjög veikt heim til fjölskyldunnar, a.m.k. miðað við alla megabitana sem tengja fólk nú á tímum tæknialdar. Svo kom hann náttúrulega til Íslands þar sem kynntist ömmu og hefur búið hérna síðan.

Draslið mitt kom svo úr Ikea um áttaleytið en ég náði ekki að setja allt saman einmitt útaf Skype samtölunum. Netið er tímaþjófur, hvort sem það var nú gott eða slæmt í þessu tilviki, það var mjög indælt að ná tali af öllum. Ég var fram á rauða nótt að setja saman húsgögn og nú liggur skrifborðið mitt á hvolfi á miðju gólfinu og allt er í drasli í íbúðinni. Nú sit ég svo dauðþreyttur í tíma og hugsa með hryllingi til þess að ég þurfi að fara í annan kúrs að þessum tíma loknum, kúrs sem samkvæmt stundaskrá varir fram til klukkan fimm.

Í kvöld held ég að ég fari fyr að sofa.

P.S. Nýtt heimilisfang er:

Svanevej 17, 4. sal, dør 505
2400 København NV
Danmark

Svo er ég líka kominn með Danskt símanúmer fyrir meira aðkallandi efni: 0045 (fyrir Danmörk) 53 14 59 60. Þetta þýðir að ég mun sennilega ekki íslenska númerið mikið á næstunni, svo ekki búast við svörum við SMS-um eða símhringingum.

Enn á fullu

Friday, September 5th, 2008

Nú er fyrsta vikan búin í skólanum og ég er enn ekki kominn með netið heim. Svo á ég líka eftir að kaupa helling í Ikea til að gera íbúðina lífvænlegri. Rúmið sem ég keypti liggur enn lappalaust á gólfinu því ég var í engu standi til að koma því á fætur þegar ég fékk það um daginn.

Þriðjudagurinn byrjaði á tíma klukkan 9 sem ég mætti í kl. 9:20 samkvæmt íslenskum hefðum. Ég var þó aðallega seinn því ég þurfti að koma mér frá Lundi til Lyngby, og það tekur dágóða stund. Þegar tíminn var búinn strunsaði ég í Ikea og keypti mér áðurnefnt rúm auk laks, rúmfóta, leirtaus, glasa og hnífapara. Eftir það gekk ég aftur út á lestastöð með leirtauið og glösin í fanginu því sendibílafyrirtækið gat ekki lofað að færa mér það óbrotið heim á Svanevej. Eftir að hafa svitnað vel á leiðinni beið ég í nokkra stund eftir bílnum og þegar ég og bílstjórinn vorum búnir að henda rúminu upp á fimmtu hæð hélt ég mína leið til Lundar, þar sem allt draslið mitt beið hjá Mána.

Þangað mætti ég um níuleitið og var svo loks kominn heim með dótið mitt rétt fyrir miðnætti. Ég reif plastaið af rúminu í snarhasti, skellti mér í sturtu og henti mér á dýnuna. Morguninn eftir vaknaði ég með bakverki og var allur stífur og komst að þeirri niðurstöðu að ég hefði keypt of stífa dýnu. Nú er ég þó ekki viss, ég gæti verið farinn að venjast henni og sérstaklega kann að vera að yfirdýnan sem ég á eftir að kaupa lagi stífleikann. Nú er ég í limbói um hvort ég eigi að skila dýnunni og fá aðra, því það má ég víst bara gera einu sinni svo ég gæti setið uppi með allt of mjúka dýnu ef ég skipti og svo þarf ég líka að fá bíl heim til að flytja dýnuna aftur til Ikea, sem kostar pening og vesen því ég veit ekkert hvar ég redda mér flutningabíl í Kaupmannahöfn.

Ég vona samt núna innilega að flutningurinn fari að taka enda því mig er farið að dauðlanga í almennilega íbúð sem þar sem ég get hangið á netinu upp í sófa fyrir framan sjónvarpið og drukkið øl =)