Archive for August, 2008

Allt á fullu

Sunday, August 31st, 2008

Nú hefur margt á daga mína drifið. Kynningarvikan í DTU er liðin og ég er búinn að kynnast fullt af fólki allstaðar að úr heiminum: Norsari, Finni, Pólverjar, Frakkar, Belgar, Kínverji, Kóreubúar og svo fullt af fóki af öðrum þjóðernum. Já, og svo hitti ég líka fjóra Íslendinga. Kynningarvikan gekk aðallega út á það að sýna fólki skólann sem og danska menningu og ég hef komist að því hversu líka menningu er að finna í Danmörku og á Íslandi miðað við mörg önnur lönd í heiminum þar sem flest sem nefnt var hljómaði kunnuglega í eyrum, en hefur eflaust komið mörgum öðrum furðulega fyrir sjónir.

Ég fæ íbúðina afhenta á morgun og mun í stresskasti reyna að kaupa það sem vantar í Ikea, þar ber helst að nefna rúm svo ég geti nú sofið almennilega fyrir fyrsta kennsludaginn. Hann er einmitt á þriðjudag, daginn eftir, en ég býst streklega við því að það verði aðallega kynning á kúrsunum og létt spjall. Kúrsarnir sem ég tek eru annars frá því að vera ágætir og yfir í að vera mjög spennandi:

  • Safety-Critical Embedded Systems
  • High-Performance Computing
  • Web 2.0 and mobile technologies
  • Introduction to Computer Game Prototyping

Nokkurnvegin í röðinni: ágætur, skárri, betri, mjög góður.

Síðasta kúrsinn komst ég reyndar ekki inn í þar sem það voru bara 24 sæti laus, en ég brá á það ráð að senda skeyti til prófessorsins sem kennir og lofsamaði Python (sem er notað við kennsluna) og lýsti því að ég hefði mikinn áhuga á tölvuleikjahönnun, og viti menn, hann sagði mér að mæta í fyrsta tímann á fimmtudaginn. Nú verð ég bara að standa við stóru orðin og sýna fádæma færni og áhuga á efninu.

Dagurinn í dag var annars góður hérna í Lundi. Sólin skein skært og hitinn hékk í kringum 20 gráður. Ég, Máni og Lars skelltum okkur í Go-Kart en Draumey stóð á hliðarlínunni á fylgdist með. Ég hafði aldrei prófað það áður og var örlítði smeykur fyrst, sérstaklega þar sem ég er búinn að missa mig í Mario Kart undanfarna daga í Wii tölvunni hans Mána, en ég klessti hvorki á neinn né keyrði útaf og þetta var hörku stuð undir lokin.

Í kvöld lauk ég svo við síðustu síðurnar af þeim 830 sem finna má í Harry Potter and the Deathly Hallows. Ég keypti hana í Leifstöð á miðvikudaginn í síðustu viku svo það tók mig um 12 daga að lesa hana. Mér finnst það mjög vel af mér vikið þar sem þessir 12 dagar hafa verið erilsamir og einnig því bókin er á ensku, ég er greinilega orðinn svona vel sjóaður í henni. Bókin var annars eins og mig grunaði, ég var búinn að komast að plottinu þegar ég las bókina á undan þessari og mig grunaði hvernig endirinn yrði. Þetta var samt skemmtileg lesning, nú þarf ég bara að finna einhverja álíka skemmtilega þar sem þetta var síðasta bókin í röðinni um Harry Potter og það eina sem ég get lesið um hann framar eru hinar bækurnar sex, sem ég er óðum farinn að gleyma.

Kongens København

Friday, August 22nd, 2008

Nú sit ég inni á The Laundromat Café í Köben og bíð eftir samlokunni minni á meðan ég sötra sódavatn. Ég mætti á svæðið í fyrradag en hoppaði reyndar beint yfir til Mána í Lundi þar sem ég slappaði af í gær eftir að hafa sofið úr mér ferðaþreytuna. Ég er kominn með danska kennitölu, sem virkar merkilegt nokk eins og íslensku kenntölurnar, og búinn að skrá lögheimili í Danmörku. Verst að ég er ekki búinn að fá íbúðina afhenta, svo allur póstur sem berst þangað áður en ég mæti á svæðið er endursendur. Ætli ég reyni ekki að fá nafnið mitt á hurðina núna á eftir þó ég eigi ekki að fá hana afhenta fyr en fyrsta sept.