Archive for April, 2008

Kaffi og vindlingar

Tuesday, April 15th, 2008

Þegar ég kom heim í dag var ég í svo góðu skapi eftir að hafa flutt fyrirlestur í Viðmótsforritun upp á tíu að ég nennti ekki að gera neitt nema hafa það huggulegt. Ég nýtti mér því sjónvarpstölvuna sem er öll að skríða saman hjá mér og horfði á mynd sem ég náði í eftir Jim Jarmusch.

Coffee and CigarettesMyndin sem fyrir valinu varð heitir Coffee and Cigarettes og ég man ekki betur en hún hafi verið sýnd á einhverri af þessum svokölluðu kvikmyndahátíðum sem skullu á landanum líkt og flóðbylgja fyrir nokkrum árum, en ég fór þá ekki. Eftir að hafa séð tvær af myndum Jarmusch (Broken Flowers og Night on Earh, báðar algerar perlur) kom þessi mér ekkert á óvart, hún líður rólega í gegn og sýnir misvandræðaleg og -innihaldsrík samtöl milli fólks sem á það sameiginlegt að vera að drekka kaffi og fá sér smók. Margar frægar persónur koma fyrir, menn á borð við Iggy Pop og Tom Waits (sem ég þekkti þó ekki fyr en eftir að lesa mér til um myndina þegar ég var búinn að horfa á hana), Bill Murray og GZA og RZA úr Wu-Tang og Jack og Meg White úr White Stripes. Sögurnar eru misáhugaverðar en fengu mig þó til að hugleiða mannleg samskipti og á hverju þau byggjast. Ég á oft í vandræðum með að brydda upp á umræðuefni í teitum sem og annarsstaðar og veit stundum ekki alveg hvað ég á að segja, svo það var gaman að sjá mynd sem gerði út á nákvæmlega það; stirð og í einhverjum skilningi „venjuleg“ samskipti milli fólks sem þekkjast lítið sem ekki neitt. Eftir að horfa of mikið á kvikmyndir og þætti frá Hollýwood verða samræður án allra punchline-a og one-linera hálf döpur. Nú get ég hinsvegar tekið gleði mína á ný.

Einokun?

Wednesday, April 2nd, 2008

Já.is

Nei.is

Hvað ætli samkeppnisyfirlitið hafi að segja um þetta?