Archive for January, 2008

Fanboi?

Tuesday, January 22nd, 2008

Eftir að pabbi keypti sér iMac í sumar hef ég þurft að kynna mér Mac OS X til að hann geti notað hana eitthvað, því varla uppgötvar hann leyndardóma þess sjálfur. Á því rúma hálfa ári sem liðið er frá því að gamla Dell dollan vék fyrir makkanum hef ég snúist frá því að vera efasemdamaður í garð Mac OS yfir í að finnst það vera með því besta sem völ er á. Sláin með forritunum niðri, elegansinn og fagurfræðin, uppsetning forrita, uppfærsla og stilling kerfisins, allt hrein snilld. Ekki má gleyma rótum kerfisins, Unix, sem þýðir að ég kann eitt og annað í Mac OS án þess að hafa lært það sérstaklega, þar sem Linux er einnig Unix kerfi. Rúsínan í pylsuendanum er síðan gripurinn sjálfur, eitt tæki sem lítur út eins og rétt rúmur tölvuskjár og ekkert box undir borði sem hýsir innviði tölvunnar. Hreint út sagt frábært.

Þó á kerfið sínar dimmu hliðar. Mjög leiðinlegt finnst mér að nota command takkann í staðin fyrir control og alveg hræðilegt að geta ekki smellt með skrunhjóli músarinnar til að loka flipum í Firefox, þá dimmist skjárinn og í ljós koma smáforritin (widgets). Einnig finnst mér tilfinningin í músinni vera eitthvað skrýtin, en ég hef nú ekki reynt að laga hana svo ég get lítið kvartað.

Það sem tekur þó út fyrir allan þjófabálk er hvernig Steve Jobs heldur manni í heljargreipum og getur danglað manni til eða frá eftir sinni hentisemi. Um daginn ákvað pabbi að uppfæra bókhaldskerfið hjá sér, það sem hann notaði var orðið gamalt og guggið og hefði hvort eð er ekki virkað í makkanum þar sem það þurfti gamalt parallel port til að nota prentarann (já, mjög gamalt). Hann dreif sig til og pungaði út góðri summu fyrir hugbúnaðinn, svo hugsaði ég með mér að það yrði lítið mál að setja upp BootCamp og henda Windows XP inn samhliða Mac OS og þá væri hægt að keyra bókhaldskerfið án vandræða. Hve hrapalega mér skjátlaðist.

Eftir nokkura leit og uppflettingar á netinu komst ég að því að til að keyra Windows á makkanum þurfti ég að setja inn nýjustu útgáfuna af Mac OS. BootCamp hefur greinilega bakdyr sem aðeins herra Jobs geymir lykilinn að, og nú hefur hann skellt öllu í lás fyrir þá sem ekki hafa hundskast til að uppfæra. Það þýðir að til þess að pabbi geti notað þann hugbúnað sem hann þarf til að reka fyrirtækið sitt á þeirri tölvu sem hann kýs að nota þurfti hann að reiða fram tæpar þrettánþúsund krónum í viðbót, eingöngu fyrir uppfærslu sem hann hefur annars ekkert gagn að. Þetta er þvílík hneysa að mér fallast hendur, mig skortir orð.

Frjáls hugbúnaður er það eina sem blífar, hann geturðu notað alls staðar, engar eru á honum bakdyr og ef hann virkaði í gær er hægt að ganga frá því vísu að hann mun virka í dag. Og líka á morgun.

Rísum gegn fasistunum, setjum upp Linux og notum tölvurnar okkar eins og við viljum nota þær!

Lulz

Saturday, January 12th, 2008

Ég ætti helst að vera farinn að sofa en það sem heldur mér vakandi eru lolcats. Ég hafði ekkert gaman af þessum kvikindum þangað til ég rakst á þessa síðu, mig grunar að húmorinn byggist upp þegar svona margar myndir koma saman og mynda heimasíðu. Svo er líka sóðalega mikið af þessum myndum, og margar sem bætast við. Það mætti vera þannig á fleiri stöðum í nethringnum sem ég vafra reglulega (þar sem xkcd og bash.org eru fastir liðir, í það minnsta eins og er).

Lumar þú á einhverjum fjörugum heimasíðum?

Enn eitt ár

Wednesday, January 2nd, 2008

Þegar ég stóð úti á róluvelli fyrir utan hjá ömmu að horfa og hlusta á raketturnar og klukkan var við það að slá miðnætti hugleiddi ég hvers kyns áramótaheit ég ætti að strengja. Eftir stutta en vandlega umhugsun ákvað ég að á nýkomnu ári skyldi ég vera duglegri að setja mér markmið. Ekki flókið og ekki svo erfitt en vonandi árangursríkt. Ég hef alltaf eitthvað að gera, hugmyndir að vinna að, bækur að lesa, kvikmyndir að horfa á o.s.frv. en kem of fáu í verk. Ég áttaði mig á því fyrir nokkru síðan að það er betra að framkvæma fáa hluti vel en marga hluti illa svo með því að setja mér markmið vona ég að hvötin til að ljúka við þá hluti sem ég ákveð að byrja á verði sterkari.

Hvaða heit strengdir þú?