Í síðasta mánuði hringdi Gutti í mig og spurði mig hvort ég vildi koma með honum á Iceland Airwaves. Það voru 3 aðrir búnir að nefna hátíðna við mig á þeim tíma og spá í hvort ég ætlaði ekki að fara svo ég ákvað að láta undan áreitinu og slá til. Hátíðin hófst svo í síðustu viku og lauk á sunnudaginn.
Miðvikudagur
Á síðastliðinn miðvikudag ætlaði ég mér að slaka vel á, fara snemma að sofa og vera hress daginn eftir þar sem ég sá fram á stífa dagskrá á Airwaves, og hafði nýlokið prófi í tölvunarfræðinni. Þær áætlanir fengu að víkja þegar ég var upplýstur um að hátíðin byrjaði þá um kvöldið og ég dreif mig í bæinn með Gutta og Jóa. Við fengum okkur Vitaborgara og röltum svo í Skífuna og hlustuðum á Hjaltalín klára sína dagskrá. Þegar henni var lokið héldum við á Grand rokk og hlýddum á tvær íslenskar sveitir, Perlu og For a minor reflection. Perla er skipuð einhverjum úr Laugalækjaskóla og kannaðist ég við annan þeirra, til að byrja með hljómuðu lögin þeirra vel en svo dró úr gæðunum og var lítið varið í seinni helminginn. Hin sveitin, For a minor reflection, spilaði post rokk sem var ágætt, þungt og rólegt.
Að loknu rokki skunduðum við á Gaukinn þar sem Original melody voru að klára sinn pakka. Það var gaman að sjá þá þar sem ég þekki einn í hópnum, en þó ekki meira en það. Aðalástæða Gauksferðarinnar var hinsvegar Sesar A sem mér fannst frekar og yfir í að vera mjög leiðinlegur, líkt og fyrri daginn. Þegar hann hafði hellt öllu sínu rímnaflæði færðum við okkur yfir á Nasa þar sem táningsstelpur frá Bandaríkjunum spiluðu óspennandi rokk undir nafninu Smoosh, en héldum því næst yfir á nágranna Gauksins, Organ, og hlýddum á Solid Gold sem er Bandarískt tríó. Ég man ekkert eftir tónlistinni og dreg því þá ályktun að mér hafi ekki fundist nógu mikið til þeirra koma.
Gaukurinn tók aftur við þar sem Dóri DNA og félagi hans stigu á stokk sem tvíeikið 1985! Ég man betur eftir bandinu á undan þeim og ég náði restinni af og ber nafnið Poetrix, sem voru flottar rímur. XXX Rotweilerhundar lokuðu síðan kvöldinu og ég svínaði vel á bíl á Sæbrautinni, Jóa til yndisauka.
Fimmtudagur
Kvöldið eftir hófst á Gauknum með We Made God þar sem ég þekki tvo innanborðs. Þeir voru þéttir og skemmtilegir, kannski spilaði inn í að ég stóð í fremstu röð og fylgdist með af kostgæfni. Á Listasafni Reykjavíkur spilaði sænsk tónlistarkona ásamt hljómsveit eftir það og leiddist mér hún, hefði heldur kosið að halda mig á Gauknum og sjá Brain Police. Jæja, næst á stokk var Lay Low en ég hafði hugað mér til hreyfingar og skundaði með föruneyti í Iðnó þar sem við hlustuðum á Ólöfu Arnalds. Hana sá ég fyrst í 12 Tónum fyr á árinu þegar ég og Gugga vorum í leit að gjöf handa Gutta af tilefni sem mér er stolið úr minni. Hvort það var ekki bara afmælið hans. Þá hafði ég ekki hugmynd um hver þetta var en líkaði vel, og það var jafn skemmtilegt í seinna skiptið. Að lokum sá ég og heyrði indí bandið Grizzly Bear frá Bandaríkjunum spila á Listasafninu og fannst það vera leiðinlegt og yfir í að vera hundleiðinlegt. Eftir það brunaði ég heim og passaði mig vel á gatnamótunum frá Skúlagötu og yfir á Sæbraut.
Föstudagur
Á föstudaginn rétt náði ég í vísindaferð sem lá í átt að Hugi/Ax og var haldin með HRingum. Þar var bjór, þar voru glærur og þar var fiskabúr og leikherbergi fyrir börn. Þetta þrennt stóð upp úr, og þó, glærurnar og fyrirlesturinn hékk eiginlega bara niðrúr. Það eina sem ég man eftir var að ég veitti einhverri sniðugri uppsetningu athygli, en annað er úr minni mínu stolið. Þrír í hópnum stukku úr rútunni á leiðinni til baka við miðbæinn og héldu á Nasa, þar með talinn ég, restin fór á HR samkomu sem HÍingarnir yfirgáfu fljótlega að mér skildist.
Á Nasa spiluðu Mr. Silla and Mongoose leiðinlega tónlist og fór ég út stuttu seinna og hitti Jóa á Austurvelli. Við ákváðum að skella okkur aftur inn þar sem Bloodgroup áttu sviðið næsta klukkutímann. Það var rokna elektróník sem við sammæltumst um að væri mjög skemmtileg en eftir það rukum við út og yfir á Gaukinn til að fylgjast með Reykjavík! Þeir tónleikar voru kröftugir, ekkert sérstaklega skemmtileg tónlist, en ofurstuð á fólki og hljómsveitarmeðlimum, sem gerðu í því að hræra upp í fólki. Óeirðatónlist lýsir flutningnum vel. Þegar óeirðunum lauk tók við Deerhoof frá Bandaríkjunum. Ég hlustaði á eitt lag með þeim en yfirgaf þá Gaukinn. Afgangur kvöldsins var brotakenndur og misheppnaður, sá byrjunina á Forgotten Lores í Iðnó, fór þaðan á Motion Boys á Nasa, þar tók GusGus við sem ég flýði af vegna þrengsla og kom mér að lokum á Nonnabita þar sem ég keypti mér að borða. Bitann borðaði ég á göngu að Iðnó þar sem ég hafði ætlað að hitta Gutta á Jagúartónleikum, en fyrir utan hitti ég Jóa og við nenntum hvorugur inn. Það varð úr að við röltum á Lídó að sjá breska sveit að nafni Computer Club sem var lýst sem blöndu af Joy Division og The Cure. Ég hef ekkert hlustað á The Cure, en þeir spiluðu víst bara eitthvert lag með þeim, trommuleikaralausir þar sem hann var flottur á því og lét handtaka sig á flugvelli í Bretlandi. Þetta fannst Jóa óspennandi og við hypjuðum okkur, tókum leigubíl heim að þessu sinni. Hann svínaði ekki.
Laugardagur
Ég borðaði pizzu af Reykjavík Pizza Company þetta kvöld, sem er ofurdýr staður. Þar sem hann er svona dýr fannst mér ekki annað hægt en að biðja um afslátt og gekk út með 15% ódýrari kvöldmat fyrir vikið. Ernir hélt upp á afmælið sitt þetta kvöld og við Gutti drifum okkur til hans, ég gaf honum veglega gjöf: skrifaðan disk sem innihélt Kubuntu 7.10. Fyrir lítt upplýsta er það stýrikerfi sem byggir á Linux kjarnanum og er að gera góða hluti. Innifalin í gjöfinni var uppsetning á kerfinu og að henni lokinni fórum við Gutti og náðum í Jóa, Snorra og Hildi og komum okkur niður í bæ.
Þegar við mættum í miðbæinn var Ultra Mega Technobandið Stefán að spila á Gauknum og við fylgdumst með þeirri flogaveiki söngvarans. Allt virtist vera bilað, og í síðasta laginu gat hann ekki sungið neitt, sem kom þó ekki að sök því allir áhorfendurnir kunnu texta lagsins og gengu í hans stað. Þegar þeir voru búnir að spila var víst hljómsveitin Steed Lord næst á dagskrá, ég hef ekkert heyrt með henni, en þeir sem hafa talað um hana hafa látið ófögur orð um hana falla í mín eyru og flóttinn út af skemmtistaðnum staðfesti þær hryllingssögur ágætlega.
Rokkaður Mugison tók við á Nasa og sýndi á sér nýjar hliðar, ég hef aðeins heyrt í honum með kassagítarundirspil, en í lokalaginu sló hann allt út með trommum, söng og fjórum bassagítörum. Ra Ra Riot spiluðu næst á eftir honum og tæmdist aðeins út af staðnum í millitíðinni, svo þægilegt var að standa á gólfinu. Þó ég muni ekki eftir tónlistinni gekk hún vel í mig og var ágætlega skemmtileg.
Eftir Ra Ra Riot fylltist staðurinn hins vegar á ný þegar !!! trylltu landann, ómögulegt var að standa kjur og Jói var rifinn úr bolnum. Stemningin var rosaleg og endaði ég fremst í síðasta laginu og fílaði það í tætlur, sem og allan flutninginn. Þegar honum var lokið reyndum við að komast FM Belfast á Gauknum en röðin haggaðist ekki neitt svo við röltum við í 10-11 og fengum okkur að drekka. Þar inni háðu Gutti og Jói mikið sálarstríð þar sem þá dauðlangaði í íslenska ferskvatnið sem sem þeir gátu keypt fyrir 199 kr. lítrann. Að lokum ákváðu þeir að það væri ekki peninganna virði, stálu pappaglösum úr kaffivélinni þar og nældu sér í vatnssopa á Hressingarskálanum. Sjálfur keypti ég mér Dr. Pepper og saup á.
Við ákváðum að kíkja á Lídó í restina og heyra í Morðingjunum, sem var jafn skemmtileg og Computer Club svo við fórum bara heim með leigubíl fljótlega eftir að þeir byrjuðu að spila. Kvöldið eftir sá ég ekki neitt nema tölvuskjáinn minn á meðan ég þráaðist við að byrja að læra, og kom mér svo að sofa allt of seint.