Archive for August, 2007

Hvar er strumpurinn minn??

Tuesday, August 28th, 2007

Ég skil ekkert í því hvað Kári er að gera þarna upp í Erfðagreiningu. Þykist vera að lækna sjúkdóma alla daga?! Ef hann ætlaði að gera eitthvað nytsamlegt myndi hann fara að búa til Strump handa mér, mig hefur lengi dreymt um að fá einn í búr inn til mín. Hann gæti átt heima í litlum sveppi með verönd og tjörn, og svo til að honum leiðist ekki getur hann farið út að slá tjörnina. Þegar hann verður svo þreyttur á því getur hann fengið eins og eina strympu til sín og saman eignast þau marga litla strymplinga sem gera þau glöð í ellinni. Þegar ég verð svo orðinn stór fær strumpurinn minn rauðan hatt og buxur og hlýtur nafnið Æðstistrumpur.

Eftir því sem ég best veit virkar lífið bara þannig að nokkur stykki af litningum, myndaðir úr genum, hópa sig saman og komin er uppskrift að lífi. Genin og litningarnir eru samsettir úr einhverju sem minnti mig alltaf á Legokubba þegar ég las um þetta í náttúrufræðinni síðasta vetur og vor, og ég get hreinlega ekki skilið að á tölvuöld sé ekki hægt að smella á nokkra takka á lyklaborði og bíða í eins og mánuð og fá þá lífveru sem aldrei hefur sést áður. Lego var aldrei svo flókið þegar ég var lítill…

Biturð og beiskja

Sunday, August 26th, 2007

Ég hata þig meira
en allt sem andann dregur
og ég skal leyfa þér að heyra
hvað þú ert ógeðslegur
þú ert verri en það sem fellur til
á slæmum degi í sorpu
að tala við þig hér um bil
líkt og mín lifur sé úr skorpu
því þú eitrað hefur allt mitt líf
sem verzta lyfjaseyði
þó ég ræki gegnum hjartð hníf
þá meira ég mig meiði
er lít í augun himinblá
ekkert illt þar er að sjá
en inn við beinið lúsífer
sem alla gleði rænir mér.

Spakmæli

Monday, August 20th, 2007

Mundu það sem vísan segir:
Fróður spyr, en fávís þegir!

Blautir draumar bæta lund
því betra er að lifa
ef sælustraumar á góðri stund
fá hjartað til að tifa.

Tonn á dag kemur lookinu í lag

Friday, August 17th, 2007

Þar sem pabbi stendur í bókaútgáfu þarf hann að eiga lager af öllum þrem bókunum sem hann er að selja, og hann þarf að geyma einhversstaðar. Áður en hann er kominn í geymslu þarf þó að flytja hann á þann stað þar sem hann á að liggja þar til bækurnar breytast í peninga, og til að það gerist þarf einhver að taka til hendinni og færa allt draslið. Það gerðist í gær þegar ég fór og bar kassana sem lágu fyrir utan vinnustofuna hjá honum og upp á aðra hæðina þar sem hann er með aðstöðu. Pabbi plataði frænda minn með okkur í lið, sem var mjög þarft því honum reiknaðist til að þetta væru yfir tvö tonn. Ég bar því tonn af bókum upp á aðra hæð í gær. Geri aðrir betur!

Í fyrradag kom svo Anton aftur til landins, vel úthvíldur eftir þrjár vikur í landi tækifæranna. Það er þó einnig land lága verðsins og verzlaði hann og fjölskylda hans í takt við það. Á meðan hann var úti leysti ég hann af í skúringavinnunni sem hann er í hjá pabba sínum, og í staðin færði hann mér tvo iPodda sem hann keypti úti. Jábbs, þú last rétt, tvö stykki, brakandi fersk frá Bandaríkjunum. Nú á ég því þrjú tæki frá Apple: iPod Photo (sem var einnig keyptur í útlöndum, Barcelona 2005) sem er að verða ónýtur, iPod Video og iPod Shuffle til að fara út að skokka með. Pabbi keypti sér svo iMac um daginn, svo Apple er á góðri leið með að taka yfir heimilið. Til hamingju Steve, þú kannt þetta.

Fjarkatvenna

Saturday, August 11th, 2007

Fljótur, Blakkur, sprettu úr spori
hlaupti hratt, ég ekki þori
að líta við því heimur hrynur
í heljargreipar, og jörðin stynur.

Eitt í viðbót, samið á andvökunótt útá Kanarí fyr í sumar:

Ágirnd gefur öðru fremur
afl til vondra starfa.
Um svölun enginn maður semur
sinna illu þarfa.

Einu sinni bloggað, þú getur ekki hætt

Wednesday, August 8th, 2007

Það sjaldnast þykir siður góður
að þekja sínar blaðurskjóður
með bloggi skrifað sama kvöld
og sent var inn á tölvuöld.

Ekki þykir rímið gott
hvorki vandað, fallegt, flott
Varla nokkur njóta má
ljóðs sem boðið upp er á

En undantekning verður gerð
því penninn máttugri er en sverð
og sanna verð ég styrk og stíl
fyrir hinum skemmda skrýl

Ber ég því ljóð sem á emmessenn-spjalli
við Guðrúnu samdi, og að dómurinn falli
á veg hinn besta heitt ég vona
en það hljómar víst einhvernvegin svona:

finn hvernig sársaukinn deyfir allt út
sker burtu hjartað, á minn sálarhnút
festist í flækju sem vafði ég mér
frelsast að lokum er allt burtu sker

Helgi hinna vöruskiptandi manna

Tuesday, August 7th, 2007

13. september 1894 var fyrsti frídagur verzlunarmanna á Íslandi, og kom til af því að samþykki allra verzlunarmanna í reykjavík lág fyrir því að veita starfsfólki sínu frí þennan dag. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur skipulagði daginn og upp frá því var hann haldinn hátíðlegur á vegum félagsins. Laust fyrir miðja öldina geisaði stríð í heiminum, og kann það að hafa valdið því að ekki var skipulögð dagskrá á frídaginn sem verzlunarfólk og fleiri gátu notið. Þá er talið að ferðahefðin hafi rutt sér til rúms og var verzlunarmannahelgin, en það er helgin ásamt frídeginum, lengi vel mesta ferðahelgi landans. Það hefur einnig orsakast af því að upp úr miðri öldinni hætti frídagurinn að vera einangraður við verzlunarfólk og varð að almennum frídegi.

Heimild: http://www.vr.is/index.aspx?GroupId=439056

Verzlunarmannahelgin mín var róleg. Ég hafði hugsað mér að kíkja kannski á Innipúkann en þrátt fyrir leit á netinu áttaði ég mig ekki á því hvar miðar væru seldir. Því slappaði ég bara af í góðra vina hópi.

Á föstudeginum fór ég í heimsókn til Gutta og við fengum okkur pizzu, tókum okkur í hendur Scrabble en þegar spilin voru lögð á borðið nenntum við varla að spila. Kvöldið endaði á The Matrix sem við horfðum hálfvegis óvart á. Kvöldið eftir gisti Ýmir Bragi hjá okkur, en lítið lan-partý myndaðist í herberginu mínu, einnig hálfvegis óvart. Gutti, Máni, Sindri og Jói litu við og þar sem varla er hægt að hreyfa sig inni hjá mér fyrir tölvum kastaði ég þeirri tillögu fram að við nýttum þær í eitthvað uppbyggilegt. Mér til undrunar tóku allir málsaðilar vel í það og var spilaður OpenTTD til að byrja með og þegar nær dró morgni tók Starcraft við. Sunnudagsnóttin fór svo í einmana nörderí þar sem ég reyndi að forrita eitthvað, sem ég hef reyndar ekki gert í of langan tíma.

Nýjir tímar, betri tímar?

Thursday, August 2nd, 2007

Það er kominn rúmur mánuður síðan síðasta færzla leit dagsins ljós, og hefur það ekki gerst síðan í Mars 2006, en þá var ég líka nýbúinn að setja inn hálfalmennilegt bloggkerfi.

Núna, líkt og þá, er ástæðan uppfæring á síðunni. Ég tók hinsvegar þá meðvituðu ákvörðun að búa kerfið ekki til sjálfur heldur nota eitthvað sem aðrir hafa svitnað við að gera og skella inn Wordpress kerfinu, sem Gutti hefur notað með góðum árangri síðan ég gaf honum síðuna hans um jólin. Ég á enn eftir að dunda mér við að fínpússa síðuna, en loksins hef ég þægilegt viðmót til að setja inn efni. Útlitið já, ég mun líka búa til eitthvað flott þegar ég hef ekkert annað betra að gera, en þangað til nota ég þetta brjálæðislega flotta, bleika og yfirhöfuð frábæra þema sem ber nafnið Ice Cream Dreamland. Er það ekki dásamlegt?

Lítið blogg orsakaðist líka af því að ég gerði ýmislegt í júlí sem drógu plön mín um uppfærða heimasíðu enn frekar. Ég fór á djammið með Guggu, Siggu vinkonu hennar og Ingvari Frey. Það endaði með veikindum í viku og í vikulokin dreif ég mig á ættarmót, bullandi kvefaður. Það var haldið á Vestfjörðum, Reykjanesi til að vera nákvæmur, og má lesa allt um það frekar á síðu Litlabæjar, þaðan sem langamma mín er komin.

Ég komst að því að veikindi hafa sína kosti því allir vorkenndu mér svo mikið að það eina sem þeim datt í hug þegar þeir sáu mig var að gefa mér eitthvað til að hressa mig við. Sem í þessu tilfelli þýddi sterkt áfengi. Kvöldið sem við komum fékk ég eitthvað drasl hjá nokkrum og dreif mig svo bara í háttinn með dúndrandi eyrnabólgu. Kvöldið eftir fór ég hinsvegar hinn brattasti á fljúgandi sopafyllerí sem var alveg frábært. Það var aðallega því um að kenna að ég á yndislega skemmtilegt frændfólk sem ég hef í raun ekkert kynnst fyr en þessa helgi. Ég ætla að beita mér fyrir því í framtíðinni að tengslin verði elfd enn frekar.

Við heimkomuna fékk ég í hendurnar splunkunýja fartölvu, brakandi ferska frá Bandaríkjunum. Bússi frændi minn býr og starfar í Boston og af manngæsku sinni og höfðingsskap gerði hann mér þann greiða að smygla inn Dell Precision M90, sem ég fékk fyrir vikið á minna en hálfvirði miðað við verð út úr búð hérna á Íslandinu dýra. Hún er virkilega, virkilega flott, með risa skjá og það besta af öllu (eða svona svo til). Ég get varla lagt hana frá mér, er alveg hættur að nota borðtölvuna mína.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, er að spá í að ljúka þessu á ljóði sem ég samdi um daginn:

Ég lifi fyrir núið
því naumast nokkrum þarf að segja
að það sem var er búið
og minningarnar flestar þegja.