Archive for the ‘Athyglisvert’ Category
Sippað á næsta stig
Saturday, October 25th, 2008Það er greinilega hægt að gera meira með snúsnú bandi en að leika sér á skólalóðinni:
Bytta
Friday, September 26th, 2008Er ekki fyrsta skrefið að játa vandamálið?
Ég væri svo að drekka meira ef ég ætti fleiri kalda í ísskápnum, en þeir eru því miður búnir.
Ég er annars farinn að fíla Leonard Cohen í tætlur (kannski spilar hífunin þar inn í), ég mæli sérstaklega með fyrsta disknum hans (sem er merkilegt nokk, miðað við að maðurinn sé enn í gangi!, frá 1967) sem ber einfaldlega nafnið Songs of Leonard Cohen. Lög á borð við Suzanne og So Long, Marianne eru tær snilld.
Myndaskinka!
Thursday, September 18th, 2008Skinka = spam.
Kvöldmatur um daginn:
Kvöldmatur í návígi:
Svo til að gefa nasasjón af því hvernig íbúðin lítur út koma hérna nokkrar myndir frá fyrsta kvöldinu sem ég var í henni:
Rúmið sem sést á þessum myndum er það sem ég keypti á fyrsta degi en var allt of stíft. Því svíf ég inn í svefninn á öðru rúmi núna, sem nota bene er komið á lappir. Annars er allt orðið mun heimilislegra hérna núna, viskastykkin komin á handföngin á elhússkápunum, bækur komnar upp í hillu, sófinn upp að vegg, stólar við borðið, baðmotta á baðið og kerti á eldhúsborðið, til að hafa svolítið kósý.
Fyrst ég er nú kominn af stað með að setja inn myndir vil ég láta nokkrar fylgja sem ég tók af skrifstofu hjá manni sem vann á sömu hæð og ég í Landsvirkjun í sumar.
Þessi skrifstofa hefur margt að geyma en lítið fer fyrir vinnuaðstöðu. Þó var það svo að maðurinn vann þarna inni, ekki skil ég hvernig hann fór að því.
Síðasta myndin er svona hvít vegna þess hve sólríkt var þegar hún var tekin, glugginn í bakgrunni, enda var síðastliðið sumar fáránlega sólríkt og gott. Hér í Køben er þó heldur farið að kólna og haustið hellist óðum yfir borgina. Ég er þó búinn að jafna mig af kvefinu.
Til að hafa þetta svolítið sundurlausara þá vil ég minnast á tvær myndir sem ég horfði á í gær. Þemað var Tarantino og var fyrri myndin Four Rooms sem gerist á hóteli og fylgir sögu vikardrengs sem nýlega hefur hafið þar störf. Dagurinn er gamlársdagur, sem líður svo fram á kvöld, og lendir hann í sífellt skrautlegri uppákomum með gestum hótelsins. Myndinni er skipt í fjóra hluta sem hver gerist í sínu herberginu og er leikstýrður og skrifaður af mismunandi leikstjórum og handritshöfundum, en þar á Tarantino síðasta hlutann.
Seinni mynd dagsins var True Romance sem er heldur blóðugri og inniheldur meiri hasar en nafnið gefur til kynna. Myndin er skrifuð af Tarantino en hann seldi handritið til að fjármagna gerð Reservoir Dogs, sem var fyrsta myndin sem kom út eftir hann. Ég er á þeirri skoðun að Tony Scott, leikstjóri True Romance, hefði síður átt að blanda sér í gerð hennar, og að töluvert betri útkoma hefði verið af leikstjórn Tarantino. Það sem ég fann helst að myndinni var hve hræðileg tónlist skreytir senurnar, en einnig að handritinu var breytt, sem er mesta firra því það brýtur heim Tarantino, sem hann svo meistaralega hefur ofið inn í allar sínar myndir.
Þessum heimi er lýst mjög vel brasilísku stuttmyndinni Tarantino’s Mind:
Cubix
Sunday, November 11th, 2007Jájájá, nú er komið að því. Leikurinn sem allir hafa beðið eftir.
Cubix er formlega kominn út í útgáfu 1.0 eftir allt of langan þróunartíma. Hann er þó einn þrívíðasti kubbaleikur sem gefinn hefur verið út, fullur af skærum litum og spennandi áskorunum. Tryggið ykkur hann í tíma á http://cubix.tveireinir.com áður en það verður of seint.
Ath. takmarkað magn!
Bakdyr
Tuesday, October 9th, 2007Einhverntíman tók ég eftir því að ef ég færði hægri hendina um einn takka til vinstri á lyklaborðinu og skrifaði nafnið mitt birtist orðið Bakdyr á skjánum. Komst að þessu fyrir tilviljun og skildi fyrst ekkert í því af hverju nafnið mitt stóð ekki fyrir framan mig.
Hvað fleira er hægt að gera skemmtilegt með svipuðum æfingum?
Flettu mig klæðum og færðu mig úr
fáðu mig til að svitna.
Færðu í ólar og beint inn í búr
nú brátt fer í kolum að hitna.
Video
Wednesday, November 2nd, 2005Ég uppgötvaði um daginn fyrir tilviljun að video eru farin að virka í vafranum hjá mér (vúhú). Af því tilefni óð ég inn á Atomfilms.com og á milli þess að skoða misgóð myndbönd rakst ég rakst á nokkur alveg fáránlega góð:
Uncle
Cousin
Brother
Þetta eru allt leirmyndbönd eftir Adam Benjamin Elliot (ef einhver af þessum 3 reglulegu gestum kannast við nafnið). Þær eru dramatískar og þunglyndislegar, en yfir höfuð yndislegar. Ég þarf að skoða meira eftir hann.
Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma Creature Comforts eftir Nick Park, skylduáhorf.










