Archive for the ‘Nörd’ Category

Rauða hættan

Sunday, September 21st, 2008

Í tilefni þess að Red Alert 3 er væntanlegur á markaðinn ákváðu EA að gera Red Alert 1 aðgengilegan gegnum heimasíðu sína án aukakostnaðar. Þeir ákváðu sumsé að gefa leikinn \o/

Ég tók strax við mér og náði í hann, og eyddi svo síðustu nótt í að koma honum upp á Windows sneiðina á tölvunni hjá mér. Tölvukerfið hjá mér lítur frekar furðulega út núna þar sem mig vantar beini (e. router) til að stýra ip tölum á tölvunum (ætla að fjárfesta í þannig tæki strax á morgun) svo ég stundaði miklar æfingar til að ná að tengja tölvurnar tvær saman. Tölvurnar tvær eru, til að hafa hlutina á hreinu, þjóninn sem ég fékk frá Mána og inniheldur alla hörðu diskana sem ég kom með frá Íslandi og svo hinsvegar fartölvan mín.

Eftir að ég var búinn að koma leiknum upp og fortíðarljóminn (e. nostalgia) dansaði á tölvuskjánum ákvað ég að glíma við verkefni sem ég setti á hilluna fyrir þónokkrum árum síðan. Ég ákvað að fá leikinn til að virka án geisladiska (eða hermun á þeim í Daemon Tools eða álíka).

Ég rifjaði upp gamla takta og nældi mér í nokkur forrit á netinu til þess gerð að möndla með gögnin í leiknum (t.d. er XCC Mixer hrein snilld ef maður vill sjá myndböndin í leiknum en nennir ekki að klára öll verkefnin) og náði svo í nokkur no-cd cröck, en ekkert gekk. Næsta skref var því eitt sem mér fannst á liðnum tíma risastórt og hálf ómögulegt. Það var að næla mér í hex-editor og krukka í tölvukóða keyrsluskrárinnar. Oh boy.

Hinsvegar er munurinn á mér þá og nú sá að ég kann að beita þessum tólum betur núna. Reyndar gekk hex-editor pot ekki neitt svo ég fór að beita stærri og flóknari tólum. Það sem best virkar, og félagi minn úr tölvunarfræðinni í HÍ mælti sérstaklega með, heitir IDA Disassembler. Hann notar það m.a.s. í vinnunni sinni hjá Frisk.

Ekki náðist markmiðið þó vel hafi miðað. Ég held ég hafi fundið mér nýtt áhugamál þarna, svona grúsk jafngildir ágætis rökfræðiþraut og væri gaman að taka frá tíma til að takast á við kóðann og endubyggja leikinn, líkt og Ludvig Strigeus gerði við Transport Tycoon Delux og bjó til OpenTTD (en hann gerði einmitt líka hinn geysivinsæla µTorrent).

Þetta grúsk væri varla frásögu færandi ef ekki hefði brugðið fyrir undrum og furðulegheitum í ferlinu. Á ferð minni gegnum sundursmalaðan kóðann rakst ég á nokkuð sem mér þótti merkilegt og skemmtilegt í senn; á milli tölvuskipana og textastrengja sem notaðir eru í leiknum má finna ágrip af innanhúsnetspjalli frá gerð leiksins. Ég gerð það að leik mínum að skrifa niður þessar línur sem leynast í skránni:

Bill R: Hey, isn’t this cool?
Bill R: Hey, want some seafood?
Barry G: Great. Just great.
Barry G: Wonderful. Perfect, in fact.
Bill P: You call this AI? Sheesh!
Bill P: Bills rule!
Brett S: Take this out, now!
Brett S: Why can’t you fit any more letters on the l
Brett S: Ed, I want to talk to you about this
Penina F: Has anyone seen my stapler?
Penina F: Has anyone seen my thesaurus?
Penina F: Has anyone seen my pencil?
Milo B: Hey Steve, can we meet in your office?
Milo B: Steve, it’ll only take a minute.
Rob S: Milo, dial 294.
Elsbeth W: That’s ‘Elsbeth’, with an E-L-S
Elsbeth W: That’s ‘Elsbeth’, not ‘Elsbarf’
Elsbeth W: That’s ‘Elsbeth’, not ‘Elfbutt’
Karen G: This is sooo weird!
Karen G: Duh!
Phil G: Hey, it worked on my computer!
Phil G: This thing is clrearly a waste of memory.
Joe B: Hmm,I see!
Joe B: Ahh, yes.
Maria DMML: Not another installer!
Maria DMML: HA HA HA HA HA!
Mike L: This is really cool! Gosh guys! Wow!
MIke L: Wow! You guys are the greatest!
Mike G: Grayfish for lunch again?
Mike G: This is lame
Glenn S: This thing’s bugged.
Glenn S: Ship it!
Steve W: OK everyone, out of my office.
Ed D: A good chat program is like a ninja…
Ed D: A good ninja is like a ninja…
Erik Y: I wear designer jeans.
Erik Y: Hey Bill, this thing keeps crashing
Jeff F: This is absolutely the best ever!
Jeff F: This is absolutely the worst ever!
Rick N: Sounds like a driver probelm.
Scott B: I need this for LOL2!
Steve T: This seems rather silly, actually.
Paul M: No…. W A Y!!
Rick P: AH HA HA HA!! HAHA!! AHH HA!
Joe K: Stalin killed my father.
Joe K: I hope you’re proud of yourself, Bill.
Big Willy: Anybody fer a spittin’ contest?
Eric W: Karate is good but you use it for evil!
Ted M: Ha. Funny. This is funny.
Damon R: I blame the French.
Dwight O: Oh, man!
Kia H: Ion cannon ready.
Kia H: Select target.
Bruce J: I am the Genie in the lamp!
Laura W: Go away, Bill
David D: Hmmm…
Mike Li: Call me Nate.
Denzil L: This would be better on the mac.
Greg H: But does it fit into 2 MB?
Jonathan L: I think I need a haircut.
Adam I: Whatever. Beef!
Joseph H: <Icy glare>
Matt H: I’m never good with clever on the spot…
Chris R: I love my job. Yeah.
Pat C: I’m a professional yodeller.
Ian L:
Jack M: I live about a block from the proposed site.
Jeff B: They all look like ants from up here.

Ég er hreint ekki sá fyrsti sem tek eftir þessu en það er alltaf gaman að uppgötva svona leynd skilaboð á stöðum sem maður síst býst við þeim.

Grettir í magnumbúðum

Saturday, March 22nd, 2008

Það er þónokkuð síðan ég hætti að hafa gaman af Gretti, að minnsta kosti eins mikið og þegar ég safnaði bókum með honum fyrir mörgum árum og eru núna vel geymdar í kassa uppi á háalofti. Engu að síður lít ég stundum inn á síðuna til að renna í gegnum nýjustu sögurnar en hún fer alltaf jafn mikið í taugarnar á mér. Það er eins og sá sem hannaði kerfið til að fletta í gegnum myndasögurnar hafi ákveðið að gera það að hægu, leiðinlegu og kvalafullu ferli þar sem músin er hvergi til spöruð og smella þar sem oftast til að kalla fram lágmarksáhrif. Af þessum orsökum, og af því að ég er í fríi og kærulaus eftir því, föndraði ég mér lítið javascript í gær áður en ég fór að sofa sem birtir manni heilan mánuð af Gretti. Til að fá fyrri eða næsta mánuð, smellir maður einfaldlega á einn takka. Og til að fá ákveðinn mánuð? Þá velur maður mánuð og ár. Gersemina má finna hér. Valmyndin uppi í horninu er hræðilega ljót og þetta virkar örugglega ekki í Internet Explorer, eða Opera, eða Safari, eða neinu öðru en Firefox, því ég er latur og nenni ekki að kveikja á Windows eða MacOS fyrir svona lítilræði.

Fanboi?

Tuesday, January 22nd, 2008

Eftir að pabbi keypti sér iMac í sumar hef ég þurft að kynna mér Mac OS X til að hann geti notað hana eitthvað, því varla uppgötvar hann leyndardóma þess sjálfur. Á því rúma hálfa ári sem liðið er frá því að gamla Dell dollan vék fyrir makkanum hef ég snúist frá því að vera efasemdamaður í garð Mac OS yfir í að finnst það vera með því besta sem völ er á. Sláin með forritunum niðri, elegansinn og fagurfræðin, uppsetning forrita, uppfærsla og stilling kerfisins, allt hrein snilld. Ekki má gleyma rótum kerfisins, Unix, sem þýðir að ég kann eitt og annað í Mac OS án þess að hafa lært það sérstaklega, þar sem Linux er einnig Unix kerfi. Rúsínan í pylsuendanum er síðan gripurinn sjálfur, eitt tæki sem lítur út eins og rétt rúmur tölvuskjár og ekkert box undir borði sem hýsir innviði tölvunnar. Hreint út sagt frábært.

Þó á kerfið sínar dimmu hliðar. Mjög leiðinlegt finnst mér að nota command takkann í staðin fyrir control og alveg hræðilegt að geta ekki smellt með skrunhjóli músarinnar til að loka flipum í Firefox, þá dimmist skjárinn og í ljós koma smáforritin (widgets). Einnig finnst mér tilfinningin í músinni vera eitthvað skrýtin, en ég hef nú ekki reynt að laga hana svo ég get lítið kvartað.

Það sem tekur þó út fyrir allan þjófabálk er hvernig Steve Jobs heldur manni í heljargreipum og getur danglað manni til eða frá eftir sinni hentisemi. Um daginn ákvað pabbi að uppfæra bókhaldskerfið hjá sér, það sem hann notaði var orðið gamalt og guggið og hefði hvort eð er ekki virkað í makkanum þar sem það þurfti gamalt parallel port til að nota prentarann (já, mjög gamalt). Hann dreif sig til og pungaði út góðri summu fyrir hugbúnaðinn, svo hugsaði ég með mér að það yrði lítið mál að setja upp BootCamp og henda Windows XP inn samhliða Mac OS og þá væri hægt að keyra bókhaldskerfið án vandræða. Hve hrapalega mér skjátlaðist.

Eftir nokkura leit og uppflettingar á netinu komst ég að því að til að keyra Windows á makkanum þurfti ég að setja inn nýjustu útgáfuna af Mac OS. BootCamp hefur greinilega bakdyr sem aðeins herra Jobs geymir lykilinn að, og nú hefur hann skellt öllu í lás fyrir þá sem ekki hafa hundskast til að uppfæra. Það þýðir að til þess að pabbi geti notað þann hugbúnað sem hann þarf til að reka fyrirtækið sitt á þeirri tölvu sem hann kýs að nota þurfti hann að reiða fram tæpar þrettánþúsund krónum í viðbót, eingöngu fyrir uppfærslu sem hann hefur annars ekkert gagn að. Þetta er þvílík hneysa að mér fallast hendur, mig skortir orð.

Frjáls hugbúnaður er það eina sem blífar, hann geturðu notað alls staðar, engar eru á honum bakdyr og ef hann virkaði í gær er hægt að ganga frá því vísu að hann mun virka í dag. Og líka á morgun.

Rísum gegn fasistunum, setjum upp Linux og notum tölvurnar okkar eins og við viljum nota þær!

Kaffi?

Sunday, November 18th, 2007

Nei, ekki kaffi, heldur forritunarmál. Það rann upp fyrir mér í dag hvers vegna mér finnst Java vera sorp af verztu gerð. Hlutbundið? Jamms, út í hörgul. Og það er einmitt akkilesarhæll þess. Til hvers að vera með 2 klasa sem eru fyrir grafík? Annar sem heitir Graphics og hinn sem heitir Graphics2D. Svo til að stilla hvernig Graphics2D hagar sér þarf maður að nota annan hlut sem heitir RenderingHints. Þetta nálgast sturlun! Það er í lagi að nýta sér hlutbundna hugsunarháttinn til að gera sér lífið einfaldara, en Java nær út fyrir allan þjófabálk.

Til að líkja Java við eitthvað þá er það eins og að skipta kamrinum út fyrir klósett. Nema hvað að þú hefur eitt klósett til að míga í og annað fyrir stykkin. Og jafnvel enn annað ef þú þarft að gera bæði.

Eða þá að þú kaupir þér nýjan bíl sem getur keyrt á öllum vegum (svona þar sem Java getur keyrt í flestum stýrikerfum). Málið er bara að hann er óþarflega flókinn, t.d. er að finna í honum tvær vélar, eina fyrir bakkgírinn og hina fyrir áframakstur. Einnig er sér útvarpstæki fyrir FM, AM og geisladiska. Og svo má ekki gleyma því að háu ljósin eru ekki innbyggð í framljósin, nei, þau eru sér. Bara svona til að gera hlutina flókna.

(Svo er náttúrulega sér hemill og sér handbremsa fyrir hvert hjól, bara svo þú getir örugglega keyrt nákvæmlega eins og þú vilt. Nema hvað að það er ekki hægt að skipta um gíra, hann er sjálfskiptur (sbr. ruslasöfnun)).

Það er ekki af ástæðulausu að ég lofa Python hástert. Í því er að finna einfalda lausn við flóknum vandamálum, en þó ekki vöntun á virkni. Í C eða C++ taka einfaldir hlutir langan tíma því málið er mjög opið og maður getur ofið alla litlu smáhlutna saman til að gera nákvæmlega það sem maður vill að þeir geri. Það tekur bara langan tíma og getur verið flókið. Í Java eru einfaldir hlutir gerðir flóknir þar sem búið er að útfæra þá fyrir mann, en útfærslan byggir á óendanlega mörgum mismunandi bútum sem getur verið stór hausverkur að tengja saman. Í Python eru einfaldir hlutir einfaldir og fljótgerðir. Þess vegna er hægt að gera flókna og stóra hluti með minniháttar fyrirhöfn.

Þetta eru mínar skoðanir. Endilega lesið, hugleiðið og gagnrýnið, eða hunsið eftir smekk, ég er opinn fyrir öllu. Ég þurfti einungis að koma þessu frá mér.