Nenna
Sunday, October 5th, 2008Ég vil einhvern ógnarkraft
sem allt í heimi getur
Til að rífa mig á rétta braut
og reka allt burt sem letur
Ég vil einhvern ógnarkraft
sem allt í heimi getur
Til að rífa mig á rétta braut
og reka allt burt sem letur
Einhverntíman tók ég eftir því að ef ég færði hægri hendina um einn takka til vinstri á lyklaborðinu og skrifaði nafnið mitt birtist orðið Bakdyr á skjánum. Komst að þessu fyrir tilviljun og skildi fyrst ekkert í því af hverju nafnið mitt stóð ekki fyrir framan mig.
Hvað fleira er hægt að gera skemmtilegt með svipuðum æfingum?
Flettu mig klæðum og færðu mig úr
fáðu mig til að svitna.
Færðu í ólar og beint inn í búr
nú brátt fer í kolum að hitna.
Situr einn og starir
stjarfur út í bláinn.
Breytir litlu þó þú farir
flest er eins og þú sért dáinn.
Svakalega sefur þú lengi minn kæri
með ólíkindum grunar mig að það væri
að ég lægi upp í rúmi svo langa stund
því ómögulegt þætti mér að festa blund.
Ég er þeim ótrúlegu hæfileikum gæddur
að geta hlegið með líkt og ég sé innfæddur
þó ég skilji hvorki orð né staf af því sem ég heyri
þá verður hlátur minn aðeins þeim mun meiri.
Á ég að nenna að blogga meira
mér finnst sem enginn nenni að heyra
það litla sem kreist ég fæ niður á blað
því lítið það þróast, það stendur í stað
Ég hef heldur engan tíma í raus
því á síðustu dögum í minn litla haus
flykkst hafa stærðir og margskonar föll
úr námsbókum, kennurum og háskólahöll.
Það sem ég reyni að koma mér frá
er að ég sé ekki fram á neinn tíma að fá
til að flétta og flækjast í orðanna net
og á hilluna bloggið mitt kannski ég set.
Þó er ei lokunni fyrir það skotið
að seinna meir fái það aftur inn flotið
ef nennu og tíma ég útvega mér
þar sem mikið af hvoru í bloggið mitt fer.
Huga minn fyllir þó ei aðeins nám
ég sífellt er upprifinn, tipla á tám
yfir öllum þeim hugmyndum, smáum sem stórum
sem yfir mig hellast úr huga míns fórum.
Finnst mér því líklegt að á hakann setji
bloggið og boli út öllu sem letji
huga minn, hönd mína, dugnað og þor
að draumunum liggja mörg ótalin spor.
Ég kveð því að sinni ef svo skildi æxlast
að fari ég annað og meira að bæxlast
en hripa og krota þau örfáu orð
er lagt hef ég auðmjúkur á internets borð.
Ég hata þig meira
en allt sem andann dregur
og ég skal leyfa þér að heyra
hvað þú ert ógeðslegur
þú ert verri en það sem fellur til
á slæmum degi í sorpu
að tala við þig hér um bil
líkt og mín lifur sé úr skorpu
því þú eitrað hefur allt mitt líf
sem verzta lyfjaseyði
þó ég ræki gegnum hjartð hníf
þá meira ég mig meiði
er lít í augun himinblá
ekkert illt þar er að sjá
en inn við beinið lúsífer
sem alla gleði rænir mér.
Mundu það sem vísan segir:
Fróður spyr, en fávís þegir!
Blautir draumar bæta lund
því betra er að lifa
ef sælustraumar á góðri stund
fá hjartað til að tifa.
Fljótur, Blakkur, sprettu úr spori
hlaupti hratt, ég ekki þori
að líta við því heimur hrynur
í heljargreipar, og jörðin stynur.
Eitt í viðbót, samið á andvökunótt útá Kanarí fyr í sumar:
Ágirnd gefur öðru fremur
afl til vondra starfa.
Um svölun enginn maður semur
sinna illu þarfa.
Það sjaldnast þykir siður góður
að þekja sínar blaðurskjóður
með bloggi skrifað sama kvöld
og sent var inn á tölvuöld.
Ekki þykir rímið gott
hvorki vandað, fallegt, flott
Varla nokkur njóta má
ljóðs sem boðið upp er á
En undantekning verður gerð
því penninn máttugri er en sverð
og sanna verð ég styrk og stíl
fyrir hinum skemmda skrýl
Ber ég því ljóð sem á emmessenn-spjalli
við Guðrúnu samdi, og að dómurinn falli
á veg hinn besta heitt ég vona
en það hljómar víst einhvernvegin svona:
finn hvernig sársaukinn deyfir allt út
sker burtu hjartað, á minn sálarhnút
festist í flækju sem vafði ég mér
frelsast að lokum er allt burtu sker
Það er kominn rúmur mánuður síðan síðasta færzla leit dagsins ljós, og hefur það ekki gerst síðan í Mars 2006, en þá var ég líka nýbúinn að setja inn hálfalmennilegt bloggkerfi.
Núna, líkt og þá, er ástæðan uppfæring á síðunni. Ég tók hinsvegar þá meðvituðu ákvörðun að búa kerfið ekki til sjálfur heldur nota eitthvað sem aðrir hafa svitnað við að gera og skella inn Wordpress kerfinu, sem Gutti hefur notað með góðum árangri síðan ég gaf honum síðuna hans um jólin. Ég á enn eftir að dunda mér við að fínpússa síðuna, en loksins hef ég þægilegt viðmót til að setja inn efni. Útlitið já, ég mun líka búa til eitthvað flott þegar ég hef ekkert annað betra að gera, en þangað til nota ég þetta brjálæðislega flotta, bleika og yfirhöfuð frábæra þema sem ber nafnið Ice Cream Dreamland. Er það ekki dásamlegt?
Lítið blogg orsakaðist líka af því að ég gerði ýmislegt í júlí sem drógu plön mín um uppfærða heimasíðu enn frekar. Ég fór á djammið með Guggu, Siggu vinkonu hennar og Ingvari Frey. Það endaði með veikindum í viku og í vikulokin dreif ég mig á ættarmót, bullandi kvefaður. Það var haldið á Vestfjörðum, Reykjanesi til að vera nákvæmur, og má lesa allt um það frekar á síðu Litlabæjar, þaðan sem langamma mín er komin.
Ég komst að því að veikindi hafa sína kosti því allir vorkenndu mér svo mikið að það eina sem þeim datt í hug þegar þeir sáu mig var að gefa mér eitthvað til að hressa mig við. Sem í þessu tilfelli þýddi sterkt áfengi. Kvöldið sem við komum fékk ég eitthvað drasl hjá nokkrum og dreif mig svo bara í háttinn með dúndrandi eyrnabólgu. Kvöldið eftir fór ég hinsvegar hinn brattasti á fljúgandi sopafyllerí sem var alveg frábært. Það var aðallega því um að kenna að ég á yndislega skemmtilegt frændfólk sem ég hef í raun ekkert kynnst fyr en þessa helgi. Ég ætla að beita mér fyrir því í framtíðinni að tengslin verði elfd enn frekar.
Við heimkomuna fékk ég í hendurnar splunkunýja fartölvu, brakandi ferska frá Bandaríkjunum. Bússi frændi minn býr og starfar í Boston og af manngæsku sinni og höfðingsskap gerði hann mér þann greiða að smygla inn Dell Precision M90, sem ég fékk fyrir vikið á minna en hálfvirði miðað við verð út úr búð hérna á Íslandinu dýra. Hún er virkilega, virkilega flott, með risa skjá og það besta af öllu (eða svona svo til). Ég get varla lagt hana frá mér, er alveg hættur að nota borðtölvuna mína.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, er að spá í að ljúka þessu á ljóði sem ég samdi um daginn:
Ég lifi fyrir núið
því naumast nokkrum þarf að segja
að það sem var er búið
og minningarnar flestar þegja.
bolur sem finnst ekki á hverju strái
að sama kvöld ég tvisvar hann sjái
trúi ég ei að tilviljun ég fái
meiri en boli tvo sem ég báða dái
Sindri var í bol með merki Þrumukattanna í kvöld, í 10-11 afgreiddi mig maður í bol með merki Þrumukattanna. Af því tilefni samdi ég þessa vísu.
Í blóði
ég á
alla sjóði
sem að selja má
fyrir íslenskt fé
sem lætur mér í té
óendanleg völd
í meira en eina öld
skálmöld
því barist verður
heiftarlega
og listi gerður
óvandlega
yfir þá sem landi stjórna
landi fórna
fyrir hagsmyni
sinna eigin þarfa
drauma
starfa
strauma
sem að mynda manninn þann
er peninga á kann.En gleymist undir lágum vegg
sá maður sem í herðar hegg
og hendi út í sjó
gref í fönn og snjó
kæli þar til sólin rís
og dauðinn liggur fyrir vís
sem engan pening á
og auðæfi ei þarf að fá
því snauður fæddist inn í heim
og snauður maður gleymist þeim
er auðinn höfðu og völd
græðgi hrein og köld
kom þeim gegnum þetta líf
öðrum var of ströng og stíf
í svefn þeir féllu daprir
draumar inn í framhaldslíf
þeim fylgdu naprir.
Vonum svo að þetta sé álíka ágætt (sem ég held, þó ég sé ekki viss. Ég er undir áhrifum áfengis).